Kynning: Bengta Kristín

March 6, 2026

Bengta Kristín Methúsalemsdóttir

Framboð: Stjórn Skátaskólans

Kæru skátar,

Ég heiti Bengta Kristín Methúsalemsdóttir, er 23 ára Mosverji og starfa sem aðstoðarsveitarforingi hjá drekaskátunum. Ég býð mig fram til setu í stjórn Skátaskólans.


Ég hef verið í skátunum frá árinu 2011 og starfað sem foringi frá 2017, bæði með drekaskátum og fálkaskátum. Ég hlaut forsetamerkið árið 2023, lauk Gilwell-þjálfun og fór sem fararstjóri á landsmót fyrir Mosverja árið 2024 og er að fara sem sveitarforingi á alheimsmót skáta í Póllandi árið 2027.


Í dag er ég í laganámi en samhliða því hef ég tekið virkan þátt í félagsstörfum, setið í stjórn

nemendafélagsins og tekið að mér ábyrgðarhlutverk innan skátastarfsins. Í fyrra sat ég t.d. í mótstjórn fálkaskátamóts, mitt fyrsta verkefni fyrir BÍS, en það kveikti hjá mér sterkan vilja til að leggja enn meira af mörkum til bandalagsins.


Mér finnst einstaklega mikilvægt að hlúa að fræðslu og þjálfun foringja. Skátastarfið byggir á „learn by doing“ og vil ég styðja enn frekar við þá aðferð. Ég tel einnig mikilvægt að við nýtum betur þá þekkingu og reynslu sem skátasystkini okkar um allan heim búa yfir – við þurfum ekki alltaf að finna upp hjólið sjálf.


Ég er tilbúin að leggja mig alla fram hljóti ég ykkar traust til að sinna starfinu og mun ég gera það af heilindum, ábyrgð og metnaði.

Nýlegar færslur
April 11, 2026
Skátaþing sett á Akureyri
March 24, 2026
Dróttskátadagurinn var hreinasta veisla!
March 18, 2026
Skátaþing 2026 - frestun
March 18, 2026
Hulda Lárusdóttir hóf störf hjá Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn og tekur við verkefnum fráfarandi viðburðarstjóra, Heiðdísi Snorradóttur. Hulda er tölvunarfræðingur og hefur áratuga reynslu af foringjastörfum og stjórnarsetu, ásamt framkvæmdum skátamóta. Hulda mun vera mótsstjórn Landsmóts skáta á Hömrum innan handar ásamt því að sinna þeim fjölmörgu viðburðum sem Skátamót standa fyrir. Ragnar Auðun Árnason hóf störf hjá Bandalagi íslenskra skáta og Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn. Starf hans deilist á Skátamót og skrifstofu BÍS. Ragnar tók virkan þátt í skátastarfi á yngri árum, sem foringi og svo starfsmaður á námskeiðum ásamt því að hafa haldgóða rekstrar- og viðburðastjórnunarreynslu. Ragnar er stjórnmálafræðingur og mun leiða matarúthlutun Landsmóts skáta á Hömrum og síðar sinna verkefnum hjá Skátamiðstöðinni. Við bjóðum Huldu og Ragnar innilega velkomin til starfa hjá okkur í Skátamiðstöðinni og hlökkum til samstarfsins á sama tíma og við þökkum Heiðdísi fyrir samstarfið.
March 12, 2026
Nýr alþjóðarfulltrúi bís hjá wosm

Share this article