Gulur september - hugmyndapakki
September 1, 2026
Alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna er 10. september

Við höfum tekið saman nokkrar hugmyndir fyrir skátafundi og færnimerki í tilefni átaksins Gulur september.
Gulur september er vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.
Í Gulum september er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.
Skátarnir eru formlegur samstarfsaðili verkefnisins og höfum við tekið saman efni sem skátafélög og skátaforingjar geta nýtt sér í sínu starfi.
Nálgast má hugmyndirnar á PDF hér eða skoða myndirnar.
Hér má svo skoða heimasíðu átaksins og finna nánari upplýsingar og fleiri viðburði.











