Nýjir Gilwell skátar

February 26, 2026

Helgina 6.-8. febrúar útskrifuðust 9 skátar úr Gilwell leiðtogaþjálfuninni og fengu einkennin sín afhent við hátíðlega stund í Gilwell skálanum. Skátarnir eru á aldrinum 22-46 ára og koma úr 3 félögum en að þessu sinni var stór hópur frá skátafélaginu Hraunbúum að útskrifast. Hópnum var skipt í flokka í upphafi þjálfunarinnar sem héldust út alla þjálfunina og hjálpuðust að við að leysa hin ýmsu verkefni sem á vegi þeirra varð. 


Gilwell leiðtogaþjálfunin er fyrir fullorðna skáta sem vilja efla sig sjálf sem leiðtoga og halda áfram að leiða skátastarf í landinu. Hópurinn hefur lokið 10 daga leiðtogaþjálfun, sem er skipt í 3 hluta, og unnið að metnaðarfullu lokaverkefni. Fyrsti hluti ævintýrisins var í júní þegar tjaldbúð var reist á Úlfljótsvatni í 5 daga, næst hittist hópurinn yfir helgi í nóvember og var svo síðasti hlutinn haldinn í upphafi febrúar. Hápunktur helgarinnar var þegar skátarnir kynntu lokaverkefnin sín fyrir hópnum en þau hafa unnið að þeim allt frá fyrsta hluta í júní. 


Um helgina var einnig hópur af skátum sem taka þátt í framhalds Gilwell leiðtogaþjálfuninni til að fá þriðju eða fjórðu perluna sína. Framhalds Gilwell hópurinn var á annari helgi í sinni þjálfun en gert er ráð fyrir lengra ferli fyrir þau þar sem verkefnin þeirra eru stærri og þurfa að ná til skátahreyfingarinnar allrar. Stefnt er að útskrift framhalds Gilwell hópsins á komandi ári og hlökkum við til að fylgjast með þeim klára sína vegferð. 


Til hamingju með áfangann öll! 



ný útskrifaðir gilwell skátar
Nýlegar færslur
By Sædís Ósk August 17, 2026
CREAN 2027 - UMSÓKN
August 12, 2026
Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á. Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum. Til að tryggja velferð þeirra er málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna. Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.
By Sædís Ósk August 6, 2026
Útkall í ung i norden 2026
July 23, 2026
Hér má lesa öll tölublöð sólstafa
July 22, 2026
Landsmót var sett á hömrum 20. júlí

Share this article