Útkall: Agora

March 3, 2026

Thank you for contacting us.
We’ll get back to you as soon as possible.

We got it.

Agora er:

alþjóðlegur viðburður þar sem róverskátar skipuleggja og keyra viðburð fyrir aðra róverskáta. Viðburðurinn einkennist af því að efla alþjóðleg tengsl milli þáttakenda þar sem að nokkrir fulltrúar frá hverju Evrópulandi taka þátt. Megininntak viðburðarins er að fræðast um og læra um skáta- og róverstarf í öðrum löndum.


Hvar og hvenær:

Í ár verður viðburðurinn haldinn í Verónu á Ítalíu dagana 15.-19. apríl 2026.


Hverjir geta sótt um:

Bandalag íslenskra skáta fær eitt til tvö sæti á Agora 2025. Skátar á aldrinum 16 - 24 ára sem eru skráð í Bandalag íslenskra skáta geta sótt um að vera þátttakendur fyrir hönd Íslands með því að fylla út umsóknareyðublaðið hér að neðan.

Þátttakendur þurfa að geta tjáð sig um rekka- og róverskátastarf á Íslandi og vera virk, áhugasöm og tilbúin að læra nýjar og mismunandi aðferðir sem nota má í skátastarfi. Mikill kostur er að þátttakendur hafi áhuga á umhverfinu og sjálfbærni. Aðaltungumál viðburðarins er enska og er því mikilvægt að þátttakendur geti tjáð sig og skilið umræður á ensku.


Verð:

Þátttökugjaldið á Agora 2026 er 100 evrur.

Þátttakendur þurfa að greiða flug og ferðakostnað sjálf en hægt er að sækja um ferðastyrk upp að 160 evrum.

Frekari upplýsingar má finna áheimasíðu Agora. Endilega hafið samband við Alþjóðaráð 


Umsóknarfrestur er til 8. mars 2026.


Umsókn á Agora 2026

This is required
This is required Enter a phone number
Enter an email Use an address with (@) and (.)
This is required
This is required
This is required
This is required
This is required

That didn’t work.

The form wasn’t sent. Please try again.

Nýlegar færslur
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ
September 4, 2026
Skiladagur 22. september kl 16:00

Share this article