Ungmennaþing

February 26, 2026

Afmælisþing

Helgina 6.–8. febrúar var Ungmennaþing 2026 haldið. Að þessu sinni var ferðinni heitið til Hveragerðis, í Skátaheimilið Strók, og var þingið haldið með afmælisþema. Þar var bæði gist, borðað og sjálft þingið haldið. Mæting var á föstudaginn klukkan 20:00 og var þingið sett hálftíma síðar. Skátarnir komu sér fyrir í skátaheimilinu og fóru síðan saman í ísbúð. Eftir gómsætan ís var haldið í bólið.


Ræs og morgunmatur var klukkan 9:00 á laugardagsmorgni. Eftir smá samvinnu var heimilinu breytt úr svefnlofti í þingsal. Ungmennaráð hélt því næst stutta fræðslu um hvernig þingstörf fara fram og að henni lokinni hófust þingstörf. Hádegishlé var gert um klukkan 13:00 og síðan var tekið fyrir áskoranir og lagabreytingartillögur. Í ár komu fram margar góðar áskoranir og nokkrar lagabreytingartillögur, til dæmis um að hafa viðburði á vegum BÍS ódýrari, stofna skátakór fyrir yngri skáta og áskorun til Ungmennaráðs um að leggja meiri áherslu á fræðslu, og margt fleira. Allt þetta mun koma nánar fram á Skátaþingi. Þinginu var slitið stundvíslega klukkan 18:00.


Í kvöldmat voru ljúffengir hamborgarar og að honum loknum var haldið upp á Ungmennaþingið með köku og grænmetisspjótum. Skátunum var frjálst að fara út, en margir ákváðu að vera inni og spila Just Dance.

Ræs var með svipuðu sniði á sunnudeginum en síðan var farið beint í frágang. Í hádeginu var boðið upp á ostaslaufur og pizzasnúða. Að lokum var þinginu slitið formlega og þeir sem þurftu að fara með strætó í bæinn gerðu það, en einnig var í boði að fara í sund. Á hverju ári er kosið í Ungmennaráð og í embætti áheyrnarfulltrúa ungmenna í stjórn BÍS.


Í ár var ráðið endurnýjað að fullu með fimm nýjum meðlimum. Einn þeirra hafði þó áður gegnt embætti áheyrnarfulltrúa, Einar Tryggvi Petersen úr Árbúum. Aðrir meðlimir ráðsins eru Lára Margrét Hermannsdóttir úr Heiðabúum, María Rakel Clausen úr Árbúum, Sigrún María Einarsdóttir úr Garðbúum og Una Signý Sigurðardóttir úr Landnemum. Áheyrnarfulltrúi ungmenna var einnig kosinn. Hörð barátta var um embættið en að lokum stóð Edda María Einarsdóttir úr Garðbúum uppi sem sigurvegari og var kjörin í embættið

Nýlegar færslur
By Sædís Ósk August 17, 2026
CREAN 2027 - UMSÓKN
August 12, 2026
Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á. Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum. Til að tryggja velferð þeirra er málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna. Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.
By Sædís Ósk August 6, 2026
Útkall í ung i norden 2026
July 23, 2026
Hér má lesa öll tölublöð sólstafa
July 22, 2026
Landsmót var sett á hömrum 20. júlí

Share this article