Hulda og Ragnar bætast í hóp starfsmanna

March 18, 2026

Hulda Lárusdóttir hóf störf hjá Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn og tekur við verkefnum fráfarandi viðburðarstjóra, Heiðdísi Snorradóttur. Hulda er tölvunarfræðingur og hefur áratuga reynslu af foringjastörfum og stjórnarsetu, ásamt framkvæmdum skátamóta. Hulda mun vera mótsstjórn Landsmóts skáta á Hömrum innan handar ásamt því að sinna þeim fjölmörgu viðburðum sem Skátamót standa fyrir.


Ragnar Auðun Árnason hóf störf hjá Bandalagi íslenskra skáta og Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn. Starf hans deilist á Skátamót og skrifstofu BÍS. Ragnar tók virkan þátt í skátastarfi á yngri árum, sem foringi og svo starfsmaður á námskeiðum ásamt því að hafa haldgóða rekstrar- og viðburðastjórnunarreynslu. Ragnar er stjórnmálafræðingur og mun leiða matarúthlutun Landsmóts skáta á Hömrum og síðar sinna verkefnum hjá Skátamiðstöðinni.


Við bjóðum Huldu og Ragnar innilega velkomin til starfa hjá okkur í Skátamiðstöðinni og hlökkum til samstarfsins á sama tíma og við þökkum Heiðdísi fyrir samstarfið.

Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article