Nýr alþjóðarfulltrú BÍS hjá WOSM

March 12, 2026

Nýr alþjóðarfulltrúi bís hjá wosm

Hildur Bragadóttir, skátafélaginu Kópum, hefur tekið við sem alþjóðarfulltrúi BÍS hjá WOSM næstu tvö ár. Hún tekur við af Berglindi Lilju sem mun þó vera Hildi innan handar fyrst um sinn.


Hlutverk alþjóðarfulltrúa, e. International Commisioner (IC), er að sjá um samskipti vegna og fylgjast með því starfi sem fer fram á vegum evrópusviðs og heimssviðs alþjóðlegu skátabandalaganna, WAGGGS og WOSM. Þau eru líka í teymi Norrænu skátanefndarinnar, NSK - Nordisk speiderkomité, sem sinnir sérstöku samstarfi milli Norðurlandanna. Alþjóðarfulltrúarnir starfa líka náið með alþjóðaráði við að stuðla að því að stefna BÍS fylgi stefnum WAGGGS og WOSM, nýta erlenda viðburði og stuðningsefni, annast samskipti við erlend skátabandalög, kynna erlent skátastarf á Íslandi og kynna íslenskt skátastarf erlendis.

,,Ég hef verið skáti allt mitt líf. Beið spennt eftir að komast í 3 bekk því þá mátti ég verða drekaskáti hjá Kópum (2008). Á þessum 18 árum og þar á undan hef ég gert ótalmargt í skátastarfi en alþjóða hlið starfsins hefur síðast liðin ár verið mest áberandi í mínu starfi. Hef farið á skátamót, viðburði og ráðstefnur víða um heiminn. Lengst að heiman var Róvermoot í Ástralíu en áhrifaríkasti viðburðurinn var helgi í skátaskála Norðmanna fyrir unga talsmenn skátahreyfinga Norðurlandanna. Ég hlakka mikið til verkefna næstu ára sem annar alþjóðafulltrúi BÍS. Ég hvet alla rekka-og róverskáta sem hafa áhuga á alþjóðastarfi um að heyra í mér eða alþjóðaráði og við getum skoðað saman þau ýmsu tækifæri sem þessi hreyfing bíður uppá" - Hildur (Hildur@skatarnir.is) 

Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article