Skátaþingi frestað

March 18, 2026

Skátaþing 2026 - frestun

Vegna vályndra veðurskilyrða og ráðleggingar frá veðurfræðingum, hefur stjórn BÍS ákveðið að fresta Skátaþingi fram til 10. - 12. apríl næstkomandi.


Við áttum okkur á því að þetta er ekki óskastaða en við teljum óráðlegt að stefna fjölda skáta í langferð norður á Akureyri þegar útlit er fyrir mjög mikilli röskun á færð og hugsanlega ófærð yfir heiðarnar, sem skapar þannig óþarfa hættu fyrir ferðalanga. Við stefnum brött á Akureyri í apríl, með hækkandi sól og vonandi betra veðri.


Opnað verður aftur fyrir skráningu fyrir þau félög sem vilja bæta við þingfulltrúum en afskráningar þurfa að sendast með tölvupósti á Skátamiðstöðina. Skráning lokar viku fyrir þing, þann 3. apríl klukkan 20:30.


Aðrir lögbundnir frestir haldast óbreyttir enda þegar liðnir og eingöngu um breytingu á dagsetningu að ræða.


Ef breyting á þingfulltrúum hefur áhrif á kjörbréf félaga sem þegar hafa skilað því inn biðjum við ykkur að fylla út nýtt á heimasíðunni.


Þurfi félögin aðstoð vegna breytinga á gistingu og þess háttar, þá endilega hafið samband við Skátamiðstöðina sem mun aðstoða eftir fremsta megni.

Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article