Houens Odde Spejdercenter – Danmörku

January 20, 2026

Houens Odde er stærsta skátamiðstöð í Norður-Evrópu, staðsett í Danmörku. Houens Odde er skagi staðsettur í hjarta Danmerkur, umkringdur vatni. Á skaganum eru 15 tjaldsvæði, sum inni í skógi en önnur á opnum svæðum.


Hægt er að skipuleggja sína eigin ferð með skátasveitinni sinni, og skipuleggja dagskrá innan- og utandyra. En einnig er hægt að taka þátt í skipulagðri dagskrá miðstöðvarinnar.


Danskir sjálfboðaliðar kallast „Houmen“ og sjá um að skipuleggja dagskrá og fleira fyrir skáta og skátaforingja bæði frá Danmörku og allstaðar að úr heiminum.


Hægt er að gerast sjálfboðaliði frá 2 – 12 mánuðum í senn ef þú ert á aldrinum 18 – 30 ára. Einnig er hægt að gerast sjálfboðaliði í styttri tíma yfir sumarið. Til að fá nánari upplýsingar er hægt að skoða þessa síðu hér.

Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ

Share this article