Spennandi starfsár framundan!
September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ
Framundan er starfsár stútfullt af skemmtilegum og spennandi viðburðum fyrir öll aldursbilin. Í Skátamiðstöðinni geta skátafélögin nálgast útprentað dagatal til að hengja upp í skátaheimilinu en dagatalið vakti mikla lukku síðasta vetur. Þá má nálgast innfyllanlega rafræna útgáfu af dagatalinu hér á síðunni.
Enn þá vantar nokkra viðburði inn í dagatalið og mælum við með því að allir skátar fylgist með viðburðadagatalinu okkar hér á heimasíðunni en þar má finna skátaviðburði á okkar vegum sem og annarra.

Nýlegar færslur

October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.






