Nordic Adventure Race 2026

January 26, 2026

 

Alþjóðaráð leitar að bæði þátttakendum og foringjum til að taka þátt í Nordic Adventure Race á vesturströnd Noregs,  10-16. júlí 2026!   Tilvalið tækifæri fyrir drótt- og rekkaskátaflokka og foringja þeirra en Nordic Adventure Race er skátakeppni þar sem skátarnir ganga ákveðna vegalend, leysa þrautir og keppa í ýmsum skátaáskorunum. Þemað í þetta skipti er ævintýri og þjóðsögur!

Hvað er Nordic Adventure Race (NAR) ?

Nordic Adventure Race er spennandi viðburður sem flakkar á milli norðurlandanna. Færeyjar héldu viðburðinn fyrst 2022 og er nú komið að Noregi.

Á viðburðinum munu 50 skátar frá hverju landi vera skipt upp í nýja 6 skáta flokka og fá þar að leiðandi að kynnast skátum frá hinum norðurlöndunum. Flokkarnir fara síðan að stað í vikulanga göngu um norska fjallalendið þar sem þau munu fá tækifæri til að keppa í ýmsum þrautum á leiðinni til að safna inn stigum til að sigra keppnina. Á viðburðinum er lögð áhersla á skapandi hugsun, samvinnu og krefjandi útivist.

Almennar upplýsingar fyrir þátttakendur og sjálfboðaliða

  • Dróttskáta og rekkaskáta, skáta fædd á bilinu 10. 07. 2008 – 17. 10. 2013
  • Rekkaskátar eldri en 18 ára geta farið með sem foringjar eða sjálfboðaliðar, skátar fædd 10. 07. 2008 eða fyrr.
  • Skátafélag sendir inn eina umsókn fyrir alla sína skáta ásamt foringjum og sjálfboðaliðum
  • Einungis 50 þátttakendapláss og 10 foringja/sjálfboðaliðapláss
  • Sjálfboðaliðar og foringjar aðstoða við dagskrá mótsins og ólíklegt er að þau verði með sínum skátum á meðan á viðburðinum stendur.

Þátttökugjald

Þátttökugjaldið fyrir skátanna er 4.000 NOK ( u.þ.b. 50.000 kr.)

Gjaldið fyrir foringja / sjálfboðaliða er 1.5000 NOK (u.þ.b. 19.000 kr.)

Annar kostnaður er í höndum fararhópsins en fluggjaldið og sameiginleg einkenni er ekki innifalið í þátttökugjaldinu. Það sem er innifalið í þátttökugjaldinu er allur matur þegar viðburðurinn hefst, ferðalagið til og frá Oslo/Gardermoen að staðsetningu viðburðar, mótsmerki, öll dagskrá ásamt einhverjum sameiginlegum búnaði sveitarinnar.

Skráningin

Skátafélagið fyllir út umsóknareyðublaðið hér að neðan fyrir hönd skátaflokksins. Alþjóðaráð fer svo yfir allar skráningar og hefur samband við hópinn um næstu skref. Skátaforingjar hópanna mynda svo saman fararstjórn fyrir íslenska fararhópinn.

Skráningafrestur er til 31. janúar

Ertu með einhverjar spurningar? Endilega sendu á althjodarad@skatarnir.is

Umsóknarform

Nýlegar færslur
By Sædís Ósk August 17, 2026
CREAN 2027 - UMSÓKN
August 12, 2026
Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á. Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum. Til að tryggja velferð þeirra er málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna. Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.
By Sædís Ósk August 6, 2026
Útkall í ung i norden 2026
July 23, 2026
Hér má lesa öll tölublöð sólstafa
July 22, 2026
Landsmót var sett á hömrum 20. júlí

Share this article