Vetrarmót Reykjavíkurskáta 2026

February 13, 2026

Helgina 23.-25. janúar var haldið tíunda Vetrarmót Reykjavíkurskáta í Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni. Þema mótsins var Ólympíuleikarnir og snerist helgin að miklu leiti um keppnir í allskyns skátaþrautum. Mótið var skipulagt og haldið í sameiningu Reykjavíkurfélaganna og voru þau sex skátafélög sem sendu fulltrúa í ár frá Árbúum, Garðbúum, Landnemum, Skjöldungum, Vogabúum og Ægisbúum. 130 Skátar tóku þátt í helginni og voru um 30 af þeim sjálfboðaliðar sem gerðu helgina ævintýralega. Þátttakendur sem tóku þátt í mótinu voru á aldursbilunum fálkaskátar, dróttskátar og rekkaskátar.

 

Skátarnir mættu hressir á föstudagskvöldi og skelltu sér beint í það að koma sér fyrir í herbergjum og tjöldum. Merkilegt var þó að í JB þar sátu nokkur tóm herbergi því um 30 skátar gistu úti í tjaldi og aldrei hafa jafn margir gist úti á vetrarmóti. Veður aðstæður voru mjög góðar fyrir tjöldun með engum snjó og kringum frostmark alla helgina. Haukur Landnemi hannaði nýtt merki sem gefið var fyrir alla þá sem gistu úti á mótnu. Merkið heldur áfram næstu ár og er um að gera fyrir alla skáta að reyna á tjaldgistingu á komandi vetrarmótum. Á setningu mótsins kom Jón Andri hlaupandi með kyndla til þess að kveikja á Ólympíska eldinum.

 

Guðjón Orri og Kjartan Árbúar tóku að sér vekja tjaldsvæðið með pott, sleif og sírenum á laugardagsmorgni.

Fálkaskátar mættu á svæðið í dagsferð á laugardagi og fóru beint í klassíska Víkingaleika, eftir hádegi tóku þau göngu upp að krossi og byrjaði svo liða keppni þar sem þau kepptu í klifri, bogfimi og skátadulmáli. Þau tóku þátt í dagskrá fram að kvöldvöku þar sem sigurvegarar voru tilkynntir.

Dróttskátar tóku þátt í liðakeppni þar sem keppt var í hraða og hæfnisþrautum allan daginn. Dagskráin innihélt meðal annars klifur, bogfimi, að súrra, drumba drátt og hvaða flokkur er fljótastur að kveikja bál. Allir flokkarnir stóðu sig með prýði og geta skátafélögin verið stolt af sínum skátum á Ólympíuleikum vetrarmóts.

 

Rekkaskátar tóku þátt í liðakeppni skipulögð af Daníel Þresti, Árbúa sem gaf hverjum flokki gott frelsi til þess að njóta og gera allt sem þeim langaði til. Dagskráin innihélt blað með fullt af áskorunum meðal annars göngu í kringum Úlfljótsvatn, gista upp á fjalli og elda kjötsúpu á opnum eldi. Rekkaskátarnir nutu þess mjög vel og kláruðu margar af erfiðustu þrautunum með sóma.

 

Þórir Snær stýrði kvöldvöku sem haldin var í lautinni við KSÚ með opnum varðeldi. Fullt af skemmtilegum skemmtiatriðum frá öllum aldursbilum voru tekinn. Túri gerði sína vinsælu kökur, snúða og kakó sem kláruðust alveg. Um kvöldið tók við kvöldleikur sem Laura skipulagði og stýrði. Leikurinn bætti töfrum inn í Ólympíuleikana þar sem krakkarnir gerðu þrautir til þess að fá til baka kunnáttu sína í því að kveikja eld eftir að töframaður bæði stal eldinum og lét okkur öll gleyma hvernig maður á að kveikja eld.

Kvöldmaturinn á laugardagskvöldi var í raun hátíðarkvöldverður þar sem Túri eldaði hamborgarhrygg sem var í uppáhaldi hjá öllum.

 

Á sunnudeginum var vaknað og pakkað öllu í tæka tíð fyrir stórskemmtilega flaggaðu trönufánann (capture the flag með trönum) skipulagt og stýrt af Rafnari og Aroni sem sló svo sannarlega í gegn. Aldís og Samúel eldhús snillingar skelltu í svakalegt pylsupartý með tónlist og dansi. Eftir pylsur tók við skemmtilegur bolta leikur sem Rafnar stýrði og kallar Ultimate brennó. Sá leikur var svo skemmtilegur að erfitt var að stoppa þann leik fyrir slit. Jón Andri vildi ekki einu sinni hætta. Á slitum var tilkynnt sigurvegara dróttskáta og rekkaskáta keppnanna svo fengu allir þátttakendur mótsmerkið sem Haukur Landnemi hannaði. Þeir sem gistu í tjaldi fengu afhent sitt nýja merki. Hvert félag fékk svo þátttöku viðurkenningu sem fararstjórar tóku við.

 

Helgin gekk stórkostlega og fá allir sjálfboðaliðar stórt hrós frá mótstýru sem hefði ekki geta þetta án þeirra. Stórt hrós á Daða Má sem tók glæsilegar myndir. Stórt hrós á Jón Andra sem hljóp um alla helgina að græja allt sem græja þurfti. 

Nýlegar færslur
By Halldóra Skátarnir June 24, 2026
Námskeið í Georgíu: „Not all classrooms have four walls“
June 18, 2026
Hið árlega Drekaskátamót var haldið um helgina 5.-7. júní á Úlfljótsvatni. Þangað mættu yfir 200 vaskir drekaskátar en það eru skátar á aldrinum sjö til níu ára. Þau komu víðsvegar að og öll með það sameiginlega markmið að njóta samverunnar í undralandinu við Úlfljótsvatn og finna hinn umtalaða fjársjóð sem á víst að vera falin við vatnið. Þema ársins var nefnilega sjóræningjar og mátti sjá sjóræningja á öllum aldri bregða á leik með króka, hatta og leppa. Þrátt fyrir úrhellið sem lagðist yfir mótssvæðið voru börnin með kátínuna í fyrirrúmi og gleðin skein í gegn, enda hvergi betra að vera en í skátaútilegu! Eftir að öll voru búin að tjalda og koma sér fyrir á föstudagskvöldi var mótið sett. Mikil tilhlökkun var í þáttakendum sem sungu og dönsuðu fram á kvöld. Eftir kakó og kex komu öll sér á endanum í ró og kúrðu inni í tjaldi á meðan næturregnið helltist yfir tjaldbúðina. Á dagskrá var ýmislegt spennandi í boði en þar má helst nefna klifur í stærsta útiklifurturni landsins, bogfimi, hoppukastala, báta og heimsókn í Skátasafnið. Rigningin var greinilega ekki nóg busl fyrir sum þar sem mikill fjöldi skellti sér í vatnasafaríið og blotnaði meira, ef það var hægt! Um kvöldið var síðan haldin kvöldvaka í fallegu rjóðri með útsýni yfir vatnið og Botnssúlur í fjarska. Á þessum fallegu sumarkvöldvökum finnur maður skátaandan svífa í loftinu, snarkið í varðeldinum, gítarspil, hlátur og skátasöngvarnir sungnir í fallegum kór sáttra skáta. Eftir kvöldvökuna var farið í næturleik þar sem krakkarnir þurftu að sinna hinum ýmsu verkefnum eins og að mynda mannlegan píramída, semja lag, leysa gátur og hlaupa fram og til baka yfir heilu túnin. Að loknum næturleik var komið að kakóstund og ró. Ofur þreyttir kroppar eftir ærslaleik dagsins kúrðu í tjaldbúðinni og mátti heyra himbrima parið úti á vatni góla í kyrrðinni. Á sunnudagsmorgni heilsaði sólin loks almennilega upp á okkur hér við Úlfljótsvatn og skein svoleiðis gleðin úr litlu skátahjörtunum. Fyrir hádegi fóru öll í dagskrá og mótinu síðan slitið með stæl. Ekki sást annað en að börnin, foringjar, foreldrar og starfsfólk hafi notið sín í botn og séu sátt með helgina. Við í mótsstjórn erum allavegana mjög sátt með helgina og þökkum fyrir frábært Drekaskátamót! Fyrir hönd mótsstjórnar, Eva Rut Mótsstjórn, Birta Dís, Dagur Sverris, Eva Rut, Freyja Björgvins, Júlía Dögg, Silja Líf og Viktor Nói
June 1, 2026
Gleði og eftirvænting ríkti meðal skáta sem lögðu leið sína að Úlfljótsvatni laugardaginn 9. maí síðastliðinn. Þar fór fram Fjölskylduskátadagur sem Fossbúar skipulögðu. Á dagskránni voru meðal annars stafaratleikur, skátabingó og fjölbreyttir samvinnuleikir sem nutu mikilla vinsælda. Dagurinn endaði á skemmtilegri söngstund þar sem hreyfisöngvar settu svip sinn á stemninguna. Að sjálfsögðu var einnig boðið upp á hefðbundinn drekkutíma með kexi og kakói. Þátttakendur skemmtu sér vel og skipuleggjendur voru afar sátt við hvernig dagurinn heppnaðist.
April 29, 2026
Skátaþing var haldið í Brekkuskóla á Akureyri 10.-12. apríl síðastliðinn. Harpa Ósk Valgeirsdóttir, Skátahöfðingi setti þingið og ávarpaði þingheim en um 120 manns sóttu setninguna. Í ávarpi sínu lagði Harpa áherslu á að skátastarf sé einkar viðeigandi og mikilvægt fyrir ungmenni í tækniveröld nútímans og þá aðför sem æskulýðsfélög finna fyrir þar sem verið er að strika þau út úr skipuritum stjórnvalda sem virðast í auknum mæli einblína eingöngu á íþróttir. Skátahreyfingin þarf að standa saman, vera sýnileg og segja frá gildum sínum. Þá hvatti Harpa þingheim til að taka virkan þátt í dagskrá þingsins og kynnast svæðinu en Landsmót skáta verður haldið á Hömrum í sumar. Þá voru einnig góðir gestir viðstaddir og skemmtilegar kynningar í pontu. Kosningar í stjórn og ráð voru með nokkuð einföldu sniði þetta árið þar sem sjálfkjörið var í öll embætti og fagnað var með lófaklappi. Vegna frestunar á Skátaþingi vegna veðurs var brugðið á það ráð að prufukeyra rafræna þátttöku sem tókst nokkuð vel til. Örlitlir tæknilegir hnökrar áttu sér stað en það verður að teljast eðlilegt svona í fyrstu tilraun. Laugardagurinn hófst á hefðbundnum fundarstörfum þar sem farið var yfir ársskýrslu BÍS, starfsáætlun, ársreikninga og fjárhagsáætlun. Þá var komið að lagabreytingum en aðeins ein slík barst fyrir þingið og var það því afgreitt fljótt ásamt ályktun um að breyta heiti aldursbilsins Eldri skátar í Vættarskátar. Góðar og gagnlegar umræður áttu sér þó stað og góður andi var á þinginu. Eftir hádegi á laugardegi var boðið upp á smiðjur um nýja stefnu BÍS en undirbúningsvinna hefur verið í gangi allt frá síðasta Skátaþingi. Lagt var til yfirheitið Öll börn á Íslandi hafi kost á framúrskarandi skátastarfi og að grunnstoðir stefnunnar verði aðgengileiki, stuðningur og gæði. Boðið var upp á þrjár smiðjur þar sem markmiðið var að veita fólki innblástur um hvað skátar vilji sjá gert í undirflokkum stefnunnar. Rætt var um aðgengileika í skátastarfi, hver grunnur skátastarfs er og hvaða áhrif skátastarf getur haft í samfélaginu. Góð þátttaka var í smiðjunum og verður gaman að vinna úr þeim hugmyndum sem þarna komu fram í nýrri stefnu næstu árin. Á sunnudeginum var haldið á Hamra þar sem Skátagildið Kvistur, mótsstjórn og starfsfólk Hamra tóku vel á móti hópnum. Hópurinn gekk um svæðið í snjókomu, fékk kynningu á svæðinu og hvernig því verður skipt á Landsmóti. Óvænt snjókast brast út á miðri leið og má sjá að fólk skemmti sér konunglega. Endað var í pylsupartý áður en fólk hélt heim á leið.
April 11, 2026
Skátaþing sett á Akureyri

Share this article