Verkefni 39 – Heimagerður ís í poka

April 23, 2020


Verkefni 39 – Heimagerður ís í poka

Gleðileg sumar! Nú er sumarið, sem flestir eru búin að bíða spennt eftir, loksins komiðGott er að nýta daginn í eitthvað skemmtilegt, fara út að leika og búa til heimagerðan ís. Njótið dagsins og skemmtið ykkur vel


Uppskrift:

  • 2 teskeiðar af sykri
  • 1 bolli af mjólk
  • 1/2 teskeið vanilludropar
  • 1 1/2 teskeið af bragðefni af þínu vali
    • Þú getur sett það bragðefni sem þú vilt, súkkulaðisósa, sýróp, karmellusósa eða það sem þig langar í


Áhöld til að nota:

  • Klakar
  • Hálfur bolli af grófu salti
  • Tveir lásapokar (ziplock)
    • Einn þarf að vera stærri en hinn


En hvernig bý ég til ísinn?

Fyrsta skref: Taktu minni lásapokann og settu í hann mjólkina, sykurinn, vanilludropa og bragðefnið sem þú valdir. Lokaðu pokanum vel.

Annað skref: Taktu stærri lásapokann og fylltu hann til hálfs með klaka. Dreifðu saltinu yfir klakann.

Þriðja skref: Settu minni lásapokann ofan í stærri lásapokann og lokaðu vel fyrir.

Passaðu að báðir pokarnir séu lokaðir mjög vel. 

Fjórða skref: Nú er komið að því að hrista! Hrista eins mikið og þú getur. Settu á góða tónlist og dansaðu eins og enginn sé morgundagurinn. Hristu þangað til ísinn er tilbúinn.

Fimmta skref: Svo er bara að njótaSettu ísinn í skál og þú getur bætt við ávextum eða það kurl sem þig langar í.

Mundu svo að þrífa pokana svo þú getir notað þá aftur 


Gleðilegt sumar


Nýlegar færslur
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ
September 4, 2026
Skiladagur 22. september kl 16:00
September 1, 2026
Alþjóðlegur dagur sjálfsvígsforvarna er 10. september
By Sædís Ósk August 17, 2026
CREAN 2027 - UMSÓKN

Share this article