Verkefni 28 – Skáti er traustur

April 12, 2020


Verkefni 28 – Skáti er traustur

Dagurinn í dag er tileinkaður þriðju grein skátalaganna ‘Skáti er traustur’ og er verkefni dagsins að búa til brú úr spaghettí sem er jafn traust og skátar! Er það hægt..? Það er bara ein leið til að komast að því

Byrjaðu á því að finna spaghettí (ekki sjóða það í þetta skiptið). Þú þarft líka skæri til að klippa það til og lím til að líma brúna saman. Þegar þú ert búin að setja brúna saman þá getur þú skreytt hana að vild! Settu á hana smápeninga, eða þungt dót til að sjá hvort brúin sé jafn traust og skátar.

Þú gætir átt þér þína uppáhalds brú sem þú vilt endurgera. Þú getur líka farið á internetið og fundið ýmsar skemmtilegar hugmyndir um hvernig brýr eru til í heiminum. Fáðu einhvern á heimilinu til að aðstoða þigÞegar allir eru búnir að setja saman sína brú þá geti þið séð hver nær að stafla fleiri smápeningum á brúna

Ekki gleyma að deila með okkur hvernig þín brú lítur úr undir myllumerkjunum #skátarnir og #stuðkví. Hlökkum til að sjá

Spaghettíbrú
Nýlegar færslur
November 3, 2026
This is a subtitle for your new post
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article