Vässarö – Svíþjóð

January 16, 2026

Vässarö er skógi vaxin eyja í Svíþjóð með nokkrum gömlum húsum sem í dag eru notuð sem skrifstofur og skátamiðstöð yfir sumartímann. Ekki er hægt að komast til eyjunnar frá október til lok apríl vegna veðurs og annara utanaðkomandi aðstæðna. En hér má lesa nánar um sögu Vässarö. 

Vässarö er í eigu nokkurra skátafélaga í Svíþjóð sem tilheyra öll undir Stockholm scout district of Sweeden en þar starfa 6 starfsmenn sem færa bækistöðvar sínar yfir til Vässarö á sumrin. Auk starfsfólks eru sjálfboðaliðar sem skipuleggja dagskrá og sjá um viðhald á eyjunni. Sjálfboðaliðar á Vässarö kallast „Funk“, og þú getur orðið einn af þeim!

Ef þú ert 18 ára eða eldri og hefur áhuga á að gerast sjálfboðaliði á Vässarö getur þú skoðað þessa síðu fyrir nánari upplýsingar.


Nýlegar færslur
November 3, 2026
This is a subtitle for your new post
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article