Stefnan tekin á Skátaþingi

April 29, 2026

Skátaþing var haldið í Brekkuskóla á Akureyri 10.-12. apríl síðastliðinn. Harpa Ósk Valgeirsdóttir, Skátahöfðingi setti þingið og ávarpaði þingheim en um 120 manns sóttu setninguna.


Í ávarpi sínu lagði Harpa áherslu á að skátastarf sé einkar viðeigandi og mikilvægt fyrir ungmenni í tækniveröld nútímans og þá aðför sem æskulýðsfélög finna fyrir þar sem verið er að strika þau út úr skipuritum stjórnvalda sem virðast í auknum mæli einblína eingöngu á íþróttir. Skátahreyfingin þarf að standa saman, vera sýnileg og segja frá gildum sínum. Þá hvatti Harpa þingheim til að taka virkan þátt í dagskrá þingsins og kynnast svæðinu en Landsmót skáta verður haldið á Hömrum í sumar.


Þá voru einnig góðir gestir viðstaddir og skemmtilegar kynningar í pontu. Kosningar í stjórn og ráð voru með nokkuð einföldu sniði þetta árið þar sem sjálfkjörið var í öll embætti og fagnað var með lófaklappi. Vegna frestunar á Skátaþingi vegna veðurs var brugðið á það ráð að prufukeyra rafræna þátttöku sem tókst nokkuð vel til. Örlitlir tæknilegir hnökrar áttu sér stað en það verður að teljast eðlilegt svona í fyrstu tilraun.


Laugardagurinn hófst á hefðbundnum fundarstörfum þar sem farið var yfir ársskýrslu BÍS, starfsáætlun, ársreikninga og fjárhagsáætlun. Þá var komið að lagabreytingum en aðeins ein slík barst fyrir þingið og var það því afgreitt fljótt ásamt ályktun um að breyta heiti aldursbilsins Eldri skátar í Vættarskátar. Góðar og gagnlegar umræður áttu sér þó stað og góður andi var á þinginu.


Eftir hádegi á laugardegi var boðið upp á smiðjur um nýja stefnu BÍS en undirbúningsvinna hefur verið í gangi allt frá síðasta Skátaþingi. Lagt var til yfirheitið
Öll börn á Íslandi hafi kost á framúrskarandi skátastarfi og að grunnstoðir stefnunnar verði aðgengileiki, stuðningur og gæði.

Boðið var upp á þrjár smiðjur þar sem markmiðið var að veita fólki innblástur um hvað skátar vilji sjá gert í undirflokkum stefnunnar. Rætt var um aðgengileika í skátastarfi, hver grunnur skátastarfs er og hvaða áhrif skátastarf getur haft í samfélaginu. Góð þátttaka var í smiðjunum og verður gaman að vinna úr þeim hugmyndum sem þarna komu fram í nýrri stefnu næstu árin.


Á sunnudeginum var haldið á Hamra þar sem Skátagildið Kvistur, mótsstjórn og starfsfólk Hamra tóku vel á móti hópnum. Hópurinn gekk um svæðið í snjókomu, fékk kynningu á svæðinu og hvernig því verður skipt á Landsmóti. Óvænt snjókast brast út á miðri leið og má sjá að fólk skemmti sér konunglega. Endað var í pylsupartý áður en fólk hélt heim á leið.


Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article