Skátaþing sett í gærkvöldi

April 11, 2026

Skátaþing sett á Akureyri

Skátaþing var sett í gærkvöldi með hátíðlegri setningarathöfn en um 120 manns sóttu setninguna. Skátaþing fer fram í Brekkuskóla á Akureyri og eru gestgjafar þingsins skátafélagið Klakkur. Harpa Ósk Valgeirsdóttir, skátahöfðingi, setti þingið og ávarpaði þingheim.


Í ávarpi sínu lagði Harpa áherslu á að skátastarf sé einkar viðeigandi og mikilvægt fyrir ungmenni í tækniveröld nútímans og þá aðför sem æskulýðsfélög finna fyrir þar sem verið er að strika þau út úr skipuritum stjórnvalda sem virðast í auknum mæli einblína eingöngu á íþróttir. Skátahreyfingin þarf að standa saman, vera sýnileg og segja frá gildum sínum. Þá hvatti Harpa þingheim til að taka virkan þátt í dagskrá þingsins og kynnast svæðinu en Landsmót skáta verður haldið á Hömrum í sumar.


Ávörp fluttu einnig Hlynur Jóhannsson, bæjarfulltrúi Akureyrarbæjar, Jóhann Malmquist, félagsforingi Klakks og Guðni Gíslason, landsgildismeistari.


Veitt voru heiðursmerki og skipunarbréf nýkjörinna félagsforingja. Þá var tilkynnt um nýjan alþjóðafulltrúa BÍS gagnvart WOSM, Hildi Bragadóttur úr skátafélaginu Kópum. Valur Kári Óskarsson, skátafélaginu Skjöldungum, hefur verið skipaður ambassador hjá KISC, alþjóðlegu skátamiðstöðinni í Kandersteg.


Skemmtileg verkefni voru kynnt þingheim. Staða Hringferðarinnar var kynnt en það er átaksverkefni Bandalags íslenskra skáta um fjölgun skáta og skátafélaga á landsbyggðinni. Þá var kynning frá Skíðasambandi skáta um vetrarskátun og mótsstjóri Landsmóts sagði frá nýjustu vendingum í undirbúningi.



Kosið var í hluta stjórnar eins og lög BÍS kveða á um og einnig var kosið í fastaráð BÍS. Harpa Ósk Valgeirsdóttir var kjörin skátahöfðingi Íslands til næstu tveggja ára, með lófaklappi.

 

 

Nýlegar færslur
By Sædís Ósk August 17, 2026
CREAN 2027 - UMSÓKN
August 12, 2026
Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á. Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum. Til að tryggja velferð þeirra er málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna. Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.
By Sædís Ósk August 6, 2026
Útkall í ung i norden 2026
July 23, 2026
Hér má lesa öll tölublöð sólstafa
July 22, 2026
Landsmót var sett á hömrum 20. júlí

Share this article