Skil á vegabréfum forsetamerkis

September 4, 2026

Skiladagur 22. september kl 16:00

Rekkaskátar sem eru að ljúka vegferðinni að forsetamerkinu geta skilað vegabréfum sínum inn til Skátamiðstöðvarinnar til 22. september næstkomandi.

Mikilvægt er að skila á réttum tíma svo Starfsráð hafi nægan tíma til að fara yfir bækurnar og staðfesta að skáti hafi lokið vegferðinni.


Undanfarin ár hafa hópar forsetamerkishafa verið svo fjölmennir að skipta hefur þurft afhendingunni í tvær athafnir. Það er sannkallað gleðiefni að svo mörg ungmenni leggi í þessa vegferð, takist á við fjölbreytt verkefni og fái að lokum að uppskera með jafningjum sínum hjá forseta Íslands.


Forsetamerkisafhendingin fer fram laugardaginn 14. nóvember á Bessastöðum. Nánari tímasetningar og fyrirkomulag athafna verða sendar á forsetamerkishafa þegar nær dregur.


Takið daginn frá!

Nýlegar færslur
October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ

Share this article