Skátahreyfingin á fund forseta Íslands

March 3, 2025

Mynd: Forsetaembættið

Þau Harpa Ósk Valgeirsdóttir, skátahöfðingi og Ragnar Þór Þrastarson, framkvæmdarstjóri BÍS fóru á fund forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, í liðinni viku. Rætt var um náið samband forsetaembættisins og skátahreyfingarinnar allt frá lýðveldisstofnun og um framhald á því samstarfi í embættistíð núverandi forseta.

Forseti Íslands hefur verið verndari skátahreyfingarinnar frá 50 ára afmæli skátastarfs á Íslandi árið 1961 og engin breyting er þar á en Halla Tómasdóttir, forseti er verndari skátahreyfingarinnar. Samstarfið hefur meðal annars átt sinn fasta sess með afhendingu forsetamerkisins á Bessastöðum á ári hverju, en þar afhendir forseti heiðursmerki til 18-19 ára ungmenna sem hafa til þriggja ára sett sér markmið um að efla sig sjálf en á sama tíma efla samfélagið með sjálfboðalistastarfi.

Fram kom á fundinum að skátahreyfingin hefur á síðustu árum náð að byggja upp þátttöku ungmenna innan sinna raða í þátttöku lýðræðislegra ákvarðanna og sett i lög að í öllum ákvörðunareiningum séu fulltrúar ungmenna. Á síðasta aðalfundi hreyfingarinnar, Skátaþingi vorsins 2024, voru yfir 70% þátttakenda undir 30 ára aldri og voru 65% atkvæða í höndum skáta á aldrinum 13-25 ára. Á fundinum var rætt um möguleika á samstarfi fleiri æskulýðssamtaka um að koma á verkefnum á landsvísu þar sem ungmenni fái stuðning og fræðslu til áhrifa á samfélagið. (Texti unnin uppúr  texta forsetaembættisins).

Mynd: Forsetaembættið
Mynd: Forsetaembættið
Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ

Share this article