Sjóræningjar tóku yfir Úlfljótsvatn á Skátasumrinu

July 20, 2023

Mikið líf og fjör var á Úlfljótsvatni um liðna helgi þegar sjóræningjar tóku yfir svæðið.

Tæplega 200 skátar komu saman á Skátasumrinu frá þrettán skátafélögum og settu upp tjaldbúðir á svæðinu.

Þau tóku þátt í fjölbreyttri sjóræningjadagskrá þar sem þau meðal annars lögðu land undir fót og heimsóttu Hengilsvæðið, Þingvelli, Eyrabakka og Knarrarósvita.

Þau tóku einnig þátt í dagskrá á svæðinu í ýmsum þorpum eins og  verkstæðinu  þar sem skátarnir föndruðu, smíðuðu, og útbjuggi allskyns sjóræningjahluti og reyndu að byggja í skip sem var siglingarhæft.

Þau kynntust alþjóðarstarfi í gegnum  WOSM-o g Better world þorpið og heimsóttu  Svarta Sjóinn sem var risa þrautabraut sem reyndi á samvinnu til að komast undir storminum sem reið yfir Svarta sjó.

,,Mikil gleði og stuð ríkti hjá þáttakendum jafnt sem eldir sjálboðaliðum á mótinu og var gaman að sjá hversu tilbúin öll voru til að hífa upp fána og vera með í sjóræningjaævintýrinu. Það sem stendur mest uppúr er að hafa fengið að fylgjast með skátum allstaðar að af landinu mynda nýjar minningar, kynnast nýjum vinum og upplifa alvöru tjaldbúðar og útilífs stemmningu“   Segir Egle Sipaviciute, mótstjóri Skátasumarsins 2024.

 

Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ

Share this article