Sjóræningjar í Undralandi
June 18, 2026

Hið árlega Drekaskátamót var haldið um helgina 5.-7. júní á Úlfljótsvatni. Þangað mættu yfir 200 vaskir drekaskátar en það eru skátar á aldrinum sjö til níu ára. Þau komu víðsvegar að og öll með það sameiginlega markmið að njóta samverunnar í undralandinu við Úlfljótsvatn og finna hinn umtalaða fjársjóð sem á víst að vera falin við vatnið. Þema ársins var nefnilega sjóræningjar og mátti sjá sjóræningja á öllum aldri bregða á leik með króka, hatta og leppa. Þrátt fyrir úrhellið sem lagðist yfir mótssvæðið voru börnin með kátínuna í fyrirrúmi og gleðin skein í gegn, enda hvergi betra að vera en í skátaútilegu!
Eftir að öll voru búin að tjalda og koma sér fyrir á föstudagskvöldi var mótið sett. Mikil tilhlökkun var í þáttakendum sem sungu og dönsuðu fram á kvöld. Eftir kakó og kex komu öll sér á endanum í ró og kúrðu inni í tjaldi á meðan næturregnið helltist yfir tjaldbúðina.
Á dagskrá var ýmislegt spennandi í boði en þar má helst nefna klifur í stærsta útiklifurturni landsins, bogfimi, hoppukastala, báta og heimsókn í Skátasafnið. Rigningin var greinilega ekki nóg busl fyrir sum þar sem mikill fjöldi skellti sér í vatnasafaríið og blotnaði meira, ef það var hægt!
Um kvöldið var síðan haldin kvöldvaka í fallegu rjóðri með útsýni yfir vatnið og Botnssúlur í fjarska. Á þessum fallegu sumarkvöldvökum finnur maður skátaandan svífa í loftinu, snarkið í varðeldinum, gítarspil, hlátur og skátasöngvarnir sungnir í fallegum kór sáttra skáta.
Eftir kvöldvökuna var farið í næturleik þar sem krakkarnir þurftu að sinna hinum ýmsu verkefnum eins og að mynda mannlegan píramída, semja lag, leysa gátur og hlaupa fram og til baka yfir heilu túnin. Að loknum næturleik var komið að kakóstund og ró. Ofur þreyttir kroppar eftir ærslaleik dagsins kúrðu í tjaldbúðinni og mátti heyra himbrima parið úti á vatni góla í kyrrðinni.
Á sunnudagsmorgni heilsaði sólin loks almennilega upp á okkur hér við Úlfljótsvatn og skein svoleiðis gleðin úr litlu skátahjörtunum. Fyrir hádegi fóru öll í dagskrá og mótinu síðan slitið með stæl. Ekki sást annað en að börnin, foringjar, foreldrar og starfsfólk hafi notið sín í botn og séu sátt með helgina. Við í mótsstjórn erum allavegana mjög sátt með helgina og þökkum fyrir frábært Drekaskátamót!
Fyrir hönd mótsstjórnar,
Eva Rut
Mótsstjórn,
Birta Dís, Dagur Sverris, Eva Rut, Freyja Björgvins, Júlía Dögg, Silja Líf og Viktor Nói
Nýlegar færslur

















