Ógleymanlegt Gilwell-ævintýri í Slóveníu

March 1, 2024

Íslenski fararhópurinn. Frá vinstri: Elín (Fossbúum), Tero (Úlfljótsvatni), Steinar Logi (Kópum), Hinrik (Vogabúum), Sebastian (Klakki), Hjálmar (Kópum) og Thelma (Hraunbúum).

Síðustu helgina í febrúar fóru sex skátaforingjar frá Íslandi, og einn leiðbeinandi, til Postojna í Slóveníu til að taka þátt í seinni hluta Gilwell-námskeiðs. Ferðin var hin eftirminnilegasta í alla staði og á námskeiðinu fengu foringjarnir gott veganesti fyrir foringjastörf sín, og fyrir síðasta hluta þjálfunarinnar – Gilwell-verkefnið.

Þetta er í annað sinn sem íslenskur hópur fer á Gilwell í Slóveníu, en um er að ræða fjölþjóðlegt námskeið sem styrkt er af Erasmus+, og hét fullu nafni International Wood Badge course – Bohinj 2023. Samhliða fjölþjóðlega námskeiðinu eru keyrð tvö önnur námskeið á sama tíma og undir sama hatti. Á þeim er lögð áhersla á dagskrármál annars vegar og stjórnun skátafélaga og viðburða hins vegar. Á alþjóðlega námskeiðinu er áherslan hins vegar á að foringinn læri að þekkja sjálfan sig – hver gildi hans eru og hvernig þau nýtast í leiðtogastörfum.

Fyrri hluti námskeiðsins fór fram í skátamiðstöð við Bohinj-vatn í ágúst á síðasta ári. Auk Íslendinga og Slóvena sóttu foringjar frá Svartfjallalandi og Serbíu námskeiðið líka. Gilwell-námskeið eru alltaf mikil upplifun, en að sitja slíkt námskeið í suður-evrópskri náttúruperlu og fá í leiðinni tækifæri til að kynnast vel skátaforingjum með allt annan bakgrunn, það er ævintýri líkast!

 

Fyrri hluti námskeiðsins fór fram í Bohinj í ágúst sl. Hér má sjá Tero og Sebastian vinna verkefni með flokknum sínum, úti í skógi.

Hópurinn flaug út á fimmtudegi. Eftir stutt næturstopp í höfuðborginni Ljubljana var farið með lest til Postojna-borgar, sem er hvað frægust fyrir samnefndan helli sem er alls um 23 km langur og fullur af dropsteinum. Fyrir námskeiðið gafst hópnum tími til að fara í skoðunarferð um hellinn, sem var sannarlega fyrirhafnarinnar virði.

Íslensku þátttakendurnir fóru að sjálfsögðu í Postojna-helli, sem er ævintýraheimur út af fyrir sig.

Á námskeiðinu sjálfu var að þessu sinni kafað dýpra ofan í verkefnastjórnun, fullorðna í skátastarfi, leiðtogahlutverkið, sögu Gilwell-námskeiða og fleira. Auk þess var sérstök vinnustofa þar sem þátttakendur reyndu að festa hönd á því hvað þeir höfðu lært á fyrri hluta námskeiðsins. Það getur nefnilega verið auðveldara að átta sig á slíku þegar smá tími hefur liðið og reynsla er komin á að nýta fróðleikinn af námskeiðinu.

Seinni hluti námskeiðsins fór fram í hosteli sem er líka menntaskóli fyrir verðandi skógfræðinga.

Eftir slit á sunnudegi beið svo leigubíll eftir hópnum. Leiðin lá í Predjama kastala, sem er steinsnar frá Postojna. Kastalans er fyrst getið í heimildum árið 1274, en hann er byggður að hluta inni í kletti. Eftir stutta en mjög áhugaverða heimsókn til miðalda lá leiðin aftur til Ljubljana og beint upp í flugvél.

Ferðin endaði svo á heimsókn í Predjama-kastala. Þetta væri nú ágætis skátaheimili!

Við tekur vinna við Gilwell-verkefnin, en hver þátttakandi þarf að klára verkefni sem reynir á verkefnastjórnunar- og leiðtogahæfileika viðkomandi. Verkefnin eru fjölbreytt, allt frá því að skipuleggja útilegu fyrir dróttskáta í tveimur félögum, yfir í viðamiklar rannsóknir eða bókaútgáfu.

Fyrir hvern og einn þátttakanda er ferð eins og þessi ógleymanlegt ævintýri. Fyrir utan það sem hægt er að læra á svona námskeiði fara skátaforingjarnir heim af því með nýja vini frá öðrum heimshornum. Slík vinátta getur enst alla ævi og býður upp á alls konar samstarf, skoðanaskipti, ferðalög og fleira. Þetta vita allir skátar sem hafa ferðast. Balkanlöndin kunna að virðast óralangt frá Íslandi, bæði menningarlega og landafræðilega, en eftir stutt kynni kemur auðvitað í ljós að fólk er meira og minna eins alls staðar. Við borðum morgunmat á morgnanna og kvöldmat á kvöldin.

Fyrir hreyfinguna sjálfa er svo dýrmætt að foringjar sækji sér þjálfun og reynslu sem víðast. Það auðgar flóruna heima við og kemur í veg fyrir stöðnun og fábreytni. Áherslurnar á þessu námskeiði eru enda býsna frábrugðnar þeim á íslenska námskeiðinu, þó svo að unnið sé að sama markmiði. Þess háttar fjölbreytni styrkir hreyfinguna og meðlmi hennar.

Það ætti því að vera keppikefli fyrir skátafélög og -bandalög að senda foringja sína vítt og breytt um heiminn. Þátttaka í Slóveníu-Gilwelli er einmitt ein birtingarmynd þeirrar stefnu.

Í ágúst byrjar nýtt námskeið, sem Íslendingar taka ekki þátt í, en þess í stað fara íslenskir þátttakendur á norrænt Gilwell-námskeið. Það verður spennandi að sjá hvað þau læra þar!

Nýlegar færslur
February 2, 2026
Rúmlega þúsund skátar eldri en átján ára koma á alheimsmótskáta sem sjálfboðaliðar. Þau bera ábyrgð á daglegu lífi og almennum rekstri mótssvæðisins og framkvæmd dagskránnar yfir mótið. Aðalhlutverk sjálfboðaliðanna er því að sjá til þess að allt skipulag og framkvæmd mótsins gangi örugglega upp. Eru sjálfboðaliðarnir því lykillinn að árangursríku móti og án sjálfboðaliðanna er ekki hægt að halda alheimsmót. Við hverju máttu búast sem sjálboðaliði mótsins? Þau sem vilja skrá sig sem IST liða á alheimsmót þurfa að vera tilbúin til þess að sinna öllum þeim verkum sem þarf að sinna fyrir mót af þessari stærð. Sum hlutverk geta krafist langs vinnudags eða vinnu á nóttunni og einnig geta sum fengið hlutverk að aðstoða íslenska fararhópinn sérstaklega á mótinu. Að auki verða IST liðar að vera skráðir meðlimir Bandalags íslenskra skáta og verða hluti af íslenska fararhópnum á mótið. Sjálfboðaliðarnir gista á sér sjálfboðaliðasvæði með öðrum sjálfboðaliðum og fararteymum. Á þessu sérsvæði er einnig að finna ýmsir dagskrámöguleikar fyrir sjálfboðaliðanna ásamt eigin matartjaldi þar sem eldað er fyrir sjálfboðaliðanna morgunmat og kvöldmat en hádegismaturinn verður yfirleitt nestirpakki sem þau taka með á sitt vinnusvæði. Skilyrði fyrir sjálfboðaliða Vera orðin 18 ára þegar mótið hefst, 30. júlí 2027. Mæting á mótssvæðið fyrir sjálfboðaliðana er 27./28. júlí 2027 og brottför er 10. ágúst 2027. Geta séð um sig sjálf við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður. Hafa getu til þess að vera þrjár vikur í tjaldútilegu við frumstæðar aðstæður og taka þátt í tjaldbúðalífi. Reynsla sjálfboðaliða Reynsla af allskonar aðstæðum, t.d. ólíku hitastigi, svefnvenjum, matarvenjum o.fl. Vera tilbúin til þess að vinna ólík störf og hafa opinn huga gagnvart því að prófa eitthvað nýtt. Hæfni og jákvætt viðmót gagnvart samvinnu með fjölbreyttum, ólíkum og alþjóðlegum hópi fólks. Kostur að hafa verið sjálfboðaliði á skátamóti eða í stjórn skátamóts, starfað í vinnuhópi BÍS, unnið í hóp við krefjandi verkefni eða viðburð. Fræðsla og þjálfun sjálfboðaliða Sjálfboðaliðar mótsins þurfa að fá viðeigandi þjálfun fyrir sín hlutverk og verkefni sem mótið sjálft sér um. Einnig eru ákveðin námskeið sem öll yfir átján ára og koma á einhvern hátt að mótinu þurfa að sækja og geta sýnt fram á vottun eða viðurkenningu um að hafa staðist þau námskeið, eins og t.d. Safe from Harm. Sumar fræðslur og námskeið munu sjálfboðaliðarnir geta nýtt sér áfram eftir Alheimsmótið í eigin lifi og starfsframa. Mótið vonar að sjálfboðaliðarnir nýti sér þá þjálfun og fræðslu sem er í boði til þess að styrkja eigin kunnáttu og getu. Hér er gróf tímalína fyrir sjálfboðaliðana til að miða við fyrir mótið. Mars 2026 – Verkefnalisti fyrir IST gefinn út Maí 2026 – Opnað fyrir almenna fjar-fræðslu fyrir sjálfboðaliða Maí 2026 – Um miðjan maí geta skráðir sjálfboðaliðar byrjað ferlið við að velja sér verkefni Febrúar 2027 – Lokað fyrir umsóknir í að velja verkefni Apríl 2027 – Opinberað hvaða hlutverk sjálfboðaliðarnir fengu. Fjarþjálfun hefst fyrir hlutverkin frá apríl til júní Júlí 2027 – Þjálfun á staðnum þegar sjálfboðaliðarnir mæta á staðinn Skemmtileg og þroskandi upplifun sjálfboðaliða Þrátt fyrir að sjálfboðaliðarnir eru að koma á mótið til þess að gefa frá sér vinnu þá á þessi reynsla líka að vera skemmtileg! Mótið vill tryggja að sjálfboðaliðarnir fái líka tækifæri til að njóta sín og hafa gaman á meðan þau stuðla að velgengni mótsins. IST- upplifunin er hönnuð til að efla, styðja og fagna hverjum sjálfboðaliða og tryggja að tíminn á Jamboree snúist ekki einungis um að sinna skyldum, heldur einnig um að vaxa, læra og skapa minningar. Til að tryggja jákvæða upplifun sjálfboðaliðanna mun mótið leggja áherslu á eftirfarandi þætti: Virk þátttaka Hver sjálfboðaliði fær tækifæri til að velja hlutverk sem fellur að sínu áhugasviði og hæfni. Til að tryggja að öll séu vel undirbúin fyrir hlutverkið verður bæði rafræn fræðsla fyrir mótið og þjálfun þegar komið er á staðinn. Einnig mun mótið senda frá sér gagnleg ráð, mikilvægar upplýsingar og hlýjar móttökur fyrir hvert hlutverk svo öll séu örugg og tilbúin fyrir sín verkefni þegar kemur að mótinu. Stuðningur Á meðan að mótinu stendur verður sífellt boðið upp á tækifæri til náms í gegnum fjölbreyttar fræðslur, vinnustofur og smiðjur. Sem getur nýst sjálfboðaliðunum langt umfram mótið sjálft. Mótið mun vera með sérstakt endurmats kerfi sem gerir sjálfboðaliðunum kleift að deila hugmyndum sínum, áskorunum og koma ráð eða úrbætur til að tryggja að raddir sjálfboðaliðanna fái að heyrast. Viðurkenning Sérstök sjálfboðaliða dagskrá verður til staðar svo sjálfboðaliðar geta skapað sína eigin persónulegu leið í gegnum Jamboree. Sú leið mótast af áhuga þeirra, áskorunum og þekkingu og gerir IST kleift að velja og skapa hluta af sinni eigin upplifun. Fá IST-liðar tækifæri til að uppgötva skemmtilegar, ævintýralegar og gagnvirkar athafnir sem auðga Jamboree-upplifunina, hvort sem þetta er í fyrsta skipti eða í tíunda sinn sem þeir taka þátt sem IST. Hægt er að vinna tvö sjálfboðaliðamerki annars vegar the IST Experience Award sem viðurkennir vinnu, þjálfun og framlag sjálfboðaliða á einstakan hátt. Svo hins vegar The Thank You Programme sem veitir hverjum sjálfboðaliða stafrænt viðurkenningarskírteini, og þeir sem ganga lengra en ætlast er til fá aukið skírteini sem undirstrikar framúrskarandi þjónustu þeirra. Þátttökugjöld IST 535.000,- kr ISK Innifalið í verði: Þátttökugjöld til mótsins - 201.600,- Eftirmótsupplifun í Kraká - 110.500,- Einkenni - 32.000,- Annar kostnaður - 190.900,- Sameiginlegur búnaður og flutningur búnaðar til og frá móti t.d. tjöld fyrir allan fararhópinn, sem hefur ekki verið síðustu mót Fararstjórn og undirbúningsferðir fararstjóra til Póllands Skrifstofu- og ófyrirséður kostnaður
February 2, 2026
Opið er fyrir umsóknir þátttakanda á alheimsmóti skáta í Póllandi 2027. Hvað felst í því að vera þátttakandi á Alheimsmóti ? Þátttakendur á alheimsmóti verða vera á aldrinum 14 – 17 ára þegar mótið byrjar 30. júlí 2027 (fædd á bilinu 30. júlí 2009 – 30. júlí 2013). Níu skátum er raðað saman í einn skátaflokk með einum foringja og fjórir flokkar saman mynda eina sveit. Íslenski fararhópurinn mun fara út með 5 sveitir og því einungis 180 pláss fyrir íslenska þátttakendur. Fararhópurinn mun hittast fyrir ferðina á undirbúningsfundum og í sveitarútilegum þar sem hópnum er hristað saman og einnig verður farið yfir ferðalagið og dagskrá mótsins til að undirbúa þátttakendurna sem best. Hér eru drög af ferðafyrirkomulagi hópsins með fyrirvara á breytingum þegar nær dregur ferðinni. 27. júlí 2027 - IST flýgur út 29. júlí 2027 - Aðalhópurinn flýgur út 30. júlí 2027 - Mótssetning 8. ágúst 2027 - Mótsslit 9.-13. 2027 - Mótsslit Hvað kostar ? Verðið fyrir þátttakanda er 572.000 kr. Athugið að þetta er verð án flugs. Innifalið í verði: Þátttökugjöld til mótsins - 224.000,- Eftirmótsupplifun í Kraká - 110.500,- Einkenni - 32.000,- Annar kostnaður - 205.500,- Sameiginlegur búnaður og flutningur búnaðar til og frá móti t.d. tjöld fyrir allan fararhópinn, sem hefur ekki verið síðustu mót Sveitarstarf fyrir mót Fararstjórn og undirbúningsferðir fararstjórnar til Póllands Skrifstofu- og ófyrirséður kostnaður Þau sem vilja taka þátt eru beðin um að lesa vel skilyðrin hér að neðan og fylla síðan út umsóknareyðublaðið. Umsóknarfresturinn er til og með 1. apríl 2026 Ef það eru einhverjar spurningar um hlutverkið þá hvetjum við ykkur til að hafa samband við fararstjórana á netfangið jambo2027@skatarnir.is. Skilyrði fyrir þátttakendur Vera orðin 14 ára og ekki orðin 18 ára þegar mótið hefst, 30. júlí 2027 Hafa farið á a.m.k. fjögurra nátta skátaviðburð og gist í tjaldi allan tímann Hafa unnið sér inn færnimerkin: Skyndihjálp Hnífur Útieldun Vegna víðáttumikils mótsvæðis þarf þátttakandi að vera í góðu líkamlegu formi og geta fengið a.m.k. 10 kílómetra á dag (nema ef um sérstök frávik er að ræða) Meðmæli frá sveitarforingja og einum úr félagaþrennunni þar sem hún er starfandi í félaginu, annars félagsforingja Góð heilsa þar sem að á mótinu er mikil útivera og dagskrá sem krefst mikillar hreyfingar í +25°C hita og því mikilvægt að þátttakendur séu líkamlega hraustir Þekki skátalögin og geti haft þau að leiðarljósi í allri vegferðinni í kringum mótið og í samskiptum við aðra. Hafa kynnt sér siðareglur Æskulýðsvettvangsins Hafa kynnt sér samskipta – og siðareglur þátttakanda mótsins sem allir þátttakendur þurfa að lesa yfir og samþykkja áður en þau fara á mótið Hafa kynnt sér 2. grein reglugerðar Bandalags íslenskra skáta um utanferðir skáta . Taka þátt í undirbúningsfundum og/eða útilegum sveitarinnar og fararhópsins til að tryggja að þátttakandi sé vel upplýstur og undirbúinn fyrir ferðina t.d.: Hittingur fararhópsins á Landsmóti skáta á Hömrum 2026 Sveitarútilegur Undirbúningsfundir sveitarinnar Geta borið allan farangurinn sinn í einum bakpoka (18-20 kg) með minni dagspoka í u.þ.b. 30 mínútur (möguleg ganga frá rútunni að tjaldsvæðinu) Hafa andlega burði til að búa þétt við frumstæðar aðstæður í fjölbreyttri mannflóru og miklu áreiti í þrjár vikur fjarri foreldrum/forráðafólki Hafa jákvætt viðhorf gagnvart nýjum reynslum, ólíkum menningarheimum og að kynna íslenskt skátastarf á alþjóðlegum vettvangi
January 29, 2026
Stjórn Bís leitar nú að nýjum alþjóðafulltrúa WOSM til tveggja ára
January 26, 2026
  Alþjóðaráð leitar að bæði þátttakendum og foringjum til að taka þátt í Nordic Adventure Race á vesturströnd Noregs,  10-16. […]
January 20, 2026
Houens Odde er stærsta skátamiðstöð í Norður-Evrópu, staðsett í Danmörku. Houens Odde er skagi staðsettur í hjarta Danmerkur, umkringdur vatni. Á skaganum eru 15 tjaldsvæði, sum inni í skógi en önnur á opnum svæðum. Hægt er að skipuleggja sína eigin ferð með skátasveitinni sinni, og skipuleggja dagskrá innan- og utandyra. En einnig er hægt að taka þátt í skipulagðri dagskrá miðstöðvarinnar. Danskir sjálfboðaliðar kallast „Houmen“ og sjá um að skipuleggja dagskrá og fleira fyrir skáta og skátaforingja bæði frá Danmörku og allstaðar að úr heiminum. Hægt er að gerast sjálfboðaliði frá 2 – 12 mánuðum í senn ef þú ert á aldrinum 18 – 30 ára. Einnig er hægt að gerast sjálfboðaliði í styttri tíma yfir sumarið. Til að fá nánari upplýsingar er hægt að skoða þessa síðu hér.

Share this article