Fararstjórar undirbúa sig

March 3, 2026

Um helgina var haldið vel heppnað fararstjóranámskeið þar sem farið var yfir allt sem þarf til að undirbúa skemmtilegt og vel heppnað Landsmót. Dagskráin var fjölbreytt og fræðandi og fengu þátttakendur góða innsýn í helstu þætti sem skipta máli við undirbúning og framkvæmd móts.


Meðlimir í mótsstjórn sáu um námskeiðið. 

María Dýrfjörð fjallaði um grunnþarfir og velferð skáta og mikilvægi þess að skapa öruggt og styðjandi umhverfi. Ingibjörg mótsstjóri og Védís kynningarstjóri Landsmóts, ræddu um samskipti og viðbrögð í krísum. Kynnt var nýtt efni frá Svissneskum skátum sem hægt er að nota til að eiga uppbyggilegt og fyrirbyggjandi samtal í óþægilegum aðstæðum sem geta komið upp á mótinu. Andrea Dagbjört tók fyrir aðgengismál og mikilvægi þess að öll geti tekið þátt á eigin forsendum. Þá fór hún einnig yfir hlutverk Skjólsins og stuðningskjóðuna sem verður afhent öllum félögum fyrir mótið.

Anna, tæknistjóri mótsins, fór yfir öryggismál í tjaldbúð og helstu atriði sem þarf að hafa í huga til að tryggja öryggi þátttakenda. Katrín Kemp kynnti viðbragðsáætlun mótsins og samstarfið við æskulýðsvettvanginn. Jóhann Malmquist dagskrárstjóri og Halldóra Hinriksdóttir fóru yfir skipulag dagskrár, skráningu í dagskrárliði og fyrirkomulag opnu dagskrárinnar.



Í lok námskeiðsins sköpuðust góðar umræður þar sem meðal annars var rætt um fyrirkomulag í fjölskyldubúðum og matinn. Að lokum voru grunnupptökur af tveimur nýjum mótslögum spiluð. Þar með lauk vel heppnuðu og uppbyggilegu námskeiði. 

Stefnt er á að hitta fararstjórnahópinn aftur þegar nær dregur móti á fjarfundi.

Hamrar útilífsmiðstöð
Nýlegar færslur
By Sædís Ósk August 17, 2026
CREAN 2027 - UMSÓKN
August 12, 2026
Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á. Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum. Til að tryggja velferð þeirra er málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna. Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.
By Sædís Ósk August 6, 2026
Útkall í ung i norden 2026
July 23, 2026
Hér má lesa öll tölublöð sólstafa
July 22, 2026
Landsmót var sett á hömrum 20. júlí

Share this article