Líf í lundi: Brauðilmur og náttúrubingó í hjarta skógarins

June 27, 2025

Frétt og myndir frá Skógarskátum.

Líf í lundi á Úlfljótsvatni

Það vr eitthvað sérstakt við andrúmslotfið í skógarrjóðrinu við KSÚ á Úlfljótsvatni laugardaginn 21. júní síðastliðinn. Ilmur af nýbökuðu brauði blandaðist við sumarloftið, hlátur barna og mjúkan fuglasöng. Skógræktarfélag skáta við Úlfljótsvatn stóð þá fyrir sínum fyrsta Líf í lundi viðburði og úr varð samverustund í faðmi náttúrunnar.

Gestirnir – hátt í 25 manns – mættu vel búnir og tilbúnir að njóta dagsins, þrátt fyrir smá skúrir. Veðrið var milt, nánast stillt og regnið gaf stemningunni jafnvel meiri dýpt – eins og náttúran væri sjálf að taka þátt í hátíðinni.

Við eldstæðin var mikið fjör. Með birkigrein í hendi og pítsadeig vafið utan um bökuðu þátttakendur sitt eigið brauð. Þegar tók að rjúka úr deginu voru valkostirnir klárir: hvítlauksolía eða kanilsykur – eða bæði! Sérstaklega vinsælt reyndist að hella fyrst olíunni yfir og síðan sykrinum – olían virkaði sem fullkomið „lím“ og úr varð brakandi góð blanda af krydduðu og sætu.

Fyrir þau sem vildu hreyfa sig var boðið upp á náttúrubingó. Gengið var í gegnum skóginn með bingóspjöld í hönd og augun opin fyrir laufblöðum, steinum og öðrum fjársjáðum skógarins. Þetta reyndist vinsælt hjá börnum og fullorðnum og veitti aukna tengingu við umhverfið.

Viðburðurinn vakti ánægju og sýndi að einföld gleði – eldur, brauð og náttúra – dugar langt til að skapa dýrmætar minningar. Skógræktarfélagið hvetur nú öll að ganga skógarstíginn sem hefst á litríkum steinum skammt frá undirgöngunum á Úlfljótsvatni – róleg ganga sem tekur einungis um 30 mínútur og hentar vel fyrir fjölskyldur.

Við þökkum öllum sem komu í lundinn kærlega fyrir og hlökkum til að sjá ykkur aftur á næsta Líf í lundi!

Nýlegar færslur
March 18, 2026
Skátaþing 2026 - frestun
March 18, 2026
Hulda Lárusdóttir hóf störf hjá Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn og tekur við verkefnum fráfarandi viðburðarstjóra, Heiðdísi Snorradóttur. Hulda er tölvunarfræðingur og hefur áratuga reynslu af foringjastörfum og stjórnarsetu, ásamt framkvæmdum skátamóta. Hulda mun vera mótsstjórn Landsmóts skáta á Hömrum innan handar ásamt því að sinna þeim fjölmörgu viðburðum sem Skátamót standa fyrir. Ragnar Auðun Árnason hóf störf hjá Bandalagi íslenskra skáta og Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn. Starf hans deilist á Skátamót og skrifstofu BÍS. Ragnar tók virkan þátt í skátastarfi á yngri árum, sem foringi og svo starfsmaður á námskeiðum ásamt því að hafa haldgóða rekstrar- og viðburðastjórnunarreynslu. Ragnar er stjórnmálafræðingur og mun leiða matarúthlutun Landsmóts skáta á Hömrum og síðar sinna verkefnum hjá Skátamiðstöðinni. Við bjóðum Huldu og Ragnar innilega velkomin til starfa hjá okkur í Skátamiðstöðinni og hlökkum til samstarfsins á sama tíma og við þökkum Heiðdísi fyrir samstarfið.
March 12, 2026
Nýr alþjóðarfulltrúi bís hjá wosm
March 9, 2026
Reynir Tómas Reynisson
By Halldóra Skátarnir March 9, 2026
Björk Norðdahl

Share this article