Helga Þórey er nýr framkvæmdastjóri skátanna

September 3, 2021

Helga Þórey er nýr framkvæmdastjóri skátanna


Helga Þórey Júlíudóttir tók í dag við sem nýr framkvæmdastjóri hjá skátunum og mun hún leiða breytingar á starfsemi Skátamiðstöðvar til að renna styrkari stoðum undir fræðslu, stuðning við dagskrá, miðlun og þjónustu við skátafélögin í landinu.  

„Þetta er gríðarlega áhugavert starf og við okkur blasa ýmsir spennandi möguleikar,“ segir Helga Þórey. 

Þjónusta skátamiðstöðvar í Hraunbæ og útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni verður efld með samstöðu og teymisvinnu starfsmanna og sjálfboðaliða í fagráðum og stjórn Bandalags íslenkra skáta (BÍS). Leiðarljós fyrir þessa sóknarstemningu er sótt í stefnuna Fyrirmynd til framtíðar , sem skátafélögin samþykktu á  Skátaþingi.  

Jákvæð þróun hefur átt sér stað í fjáröflunarstarfi Grænna skáta sem nýtur aukins stuðnings frá almenningi og fyrirtækjum, sem vilja að gefa til skátastarfsins. Kristinn Ólafsson fráfarandi framkvæmdastjóri Skátamiðstöðvar verður framkvæmdastjóri Grænna skáta.  

Útilífsmiðstöðin á Úlfljótsvatni hefur ekki farið varhluta af því ástandi sem heimfaraldurinn færir með sér. Unnið verður með þeim sjálfboðaliðum sem dvelja til lengri og skemmri tíma, sem og stoðum rennt undir rekstur m.a. annars með gefandi skólabúðum og sumarbúðastarfi.

Nánari upplýsingar veitir Helga Þórey Júlíudóttir, framkvæmdastjóri BÍS, netfang:  helga@skatarnir.is , sími 6593740.


Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ

Share this article