30 dróttskátar skemmtu sér í Lækjarbotnum

October 18, 2023

Helgina 13.-15. október var DróttKraftur haldinn í skátaskálanum í Lækjarbotnum.

DróttKraftur er leiðtogaþjálfun á vegum Leiðbeinendasveitarinnar og er lögð áhersla á að efla leiðtogafærni og samskiptahæfni þátttakenda. Dagskrá DróttKrafts byggist á leikjum, reynslunámi og samvinnu skátanna í flokkum. Þannig fá skátarnir tækifæri á því að kynnast öðrum dróttskátum á landinu, æfa sig í því að vera leiðtogar á meðal jafningja og taka þátt í lýðræðislegu starfi. Að þessu sinni voru þátttakendur 30 talsins og komu frá ólíkum félögum á landinu.

Þátttakendurnir fengu að velja dagskrá helgarinnar og urðu útieldun, flokkakeppni og kappræður fyrir valinu.

Dróttskátarnir létu veðrið ekki hafa áhrif á sig þegar þau elduðu dýrindis tómatsúpu og grillaðar samlokur í hádegismat.

Á kvöldin var svo að sjálfsögðu haldnar kvöldvökur en á laugardags kvöldvökunni voru allir flokkar með skemmtiatriði og skiptust þeir á að stýra kvöldvökunni.

Takk öll fyrir skemmtilega helgi.

 

 

Nýlegar færslur
November 3, 2026
This is a subtitle for your new post
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article