Verkefni 42 – Heimsmarkmiðin heim

April 26, 2020


Verkefni 42 – Heimsmarkmiðin heima

Í dag er markmiðið að vita meira um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og sjá hvað við getum gert heima hjá okkur til að ná heimsmarkmiðunum. Heimsmarkmiðin eru 17 og hafa skátarnir bætt við 18 markmiðinu sem er Styrkja og virkja ungt fólk.

Það er mikið sem hægt er að gera og hér er listi með 5 atriðum sem þú getur byrjað á. Þegar þú ert tilbúin/n getur þú svo bætt við listann atriðum sem þér finnast mikilvæg.


Heimsmarkmiðin heima:

1. Kynntu þér heimsmarkmiðin

Auðvelt er að finna fullt af upplýsingum um heimsmarkmiðin á netinu og gott er að skoða heimasíðu Stjórnarráðssins um markmiðin en hún segir frá hverju markmiði fyrir sig. Auk þess er verkefnabæklingurinn Byggjum betri heim góð leið til að kynnast markmiðunum í gegnum leik.

2. Segðu vinum þínum og fjölskyldu frá heimsmarkmiðunum

Talaðu um markmiðin við fólkið í kringum þig. Fáðu þau til að ræða með þér um hvað þau snúast, hver uppáhalds markmiðin ykkar eru og þið getið horft saman á kennslumyndbönd um markmiðin.  Þú getur sagt frá þeim í kynningu í skólanum eða spjallað um þau yfir kaffitímanum.

3. Lærðu um hvernig þú getur hjálpað nærumhverfi þínu

Markmiðin eru mörg og oft á tíðum mjög stór og erfið. Skoðaðu hvernig nærumhverfið þitt er að vinna með heimsmarkmiðin og hvað þú getur gert til að hjálpa til við það. Til dæmis getur þú skoðað:

  • Er skólinn þinn að vinna með heimsmarkmiðin? Hvernig?
  • Er hverfið þitt að vinna með heimsmarkmiðin? Hvernig?

4. Tileinkaðu þér heimsmarkmiðin í þínu lífi

Finndu út hvaða heimsmarkmið skipta þig máli og hvernig þú getur hjálpað til við það. Stærstu heimsmarkmiðin sem við getum hjálpað til með snúast um að minnka neysluna sem á sér stað í mörgum samfélögum. Við getum til dæmis fundið leiðir til að endurnýta hlutina okkar, skipst á hlutum/fötum þegar við erum orðin leið á þeim eða þurfum nýtt og fundið út hvernig við hendum sem minnstum mat á heimilunum okkar. Fáðu alla á heimilinu þínu til að vinna saman að því að ná ykkar markmiðum og sjáið hvað þið getið gert flotta hluti heima hjá ykkur.

5. Fáðu skátafélagið þitt til að grípa til aðgerða

Fáðu skátafélagið þitt til að grípa til aðgerða í tengslum við heimskarmiðin. Þið getið til dæmis valið ykkur heimsmarkmið til að vinna eftir, fundið verkefni og boðið svo foreldrum og vinum að koma og sjá. Þið getið líka hjálpað ykkar hverfi í að vinna að heimsmarkmiðunum og dreift út upplýsingum um það sem þið eruð að gera sem hvetur aðra til að gera það líka.


Gangi ykkur vel

#stuðkví #skátarnir


Nýlegar færslur
By Halldóra Skátarnir June 24, 2026
Námskeið í Georgíu: „Not all classrooms have four walls“
June 18, 2026
Hið árlega Drekaskátamót var haldið um helgina 5.-7. júní á Úlfljótsvatni. Þangað mættu yfir 200 vaskir drekaskátar en það eru skátar á aldrinum sjö til níu ára. Þau komu víðsvegar að og öll með það sameiginlega markmið að njóta samverunnar í undralandinu við Úlfljótsvatn og finna hinn umtalaða fjársjóð sem á víst að vera falin við vatnið. Þema ársins var nefnilega sjóræningjar og mátti sjá sjóræningja á öllum aldri bregða á leik með króka, hatta og leppa. Þrátt fyrir úrhellið sem lagðist yfir mótssvæðið voru börnin með kátínuna í fyrirrúmi og gleðin skein í gegn, enda hvergi betra að vera en í skátaútilegu! Eftir að öll voru búin að tjalda og koma sér fyrir á föstudagskvöldi var mótið sett. Mikil tilhlökkun var í þáttakendum sem sungu og dönsuðu fram á kvöld. Eftir kakó og kex komu öll sér á endanum í ró og kúrðu inni í tjaldi á meðan næturregnið helltist yfir tjaldbúðina. Á dagskrá var ýmislegt spennandi í boði en þar má helst nefna klifur í stærsta útiklifurturni landsins, bogfimi, hoppukastala, báta og heimsókn í Skátasafnið. Rigningin var greinilega ekki nóg busl fyrir sum þar sem mikill fjöldi skellti sér í vatnasafaríið og blotnaði meira, ef það var hægt! Um kvöldið var síðan haldin kvöldvaka í fallegu rjóðri með útsýni yfir vatnið og Botnssúlur í fjarska. Á þessum fallegu sumarkvöldvökum finnur maður skátaandan svífa í loftinu, snarkið í varðeldinum, gítarspil, hlátur og skátasöngvarnir sungnir í fallegum kór sáttra skáta. Eftir kvöldvökuna var farið í næturleik þar sem krakkarnir þurftu að sinna hinum ýmsu verkefnum eins og að mynda mannlegan píramída, semja lag, leysa gátur og hlaupa fram og til baka yfir heilu túnin. Að loknum næturleik var komið að kakóstund og ró. Ofur þreyttir kroppar eftir ærslaleik dagsins kúrðu í tjaldbúðinni og mátti heyra himbrima parið úti á vatni góla í kyrrðinni. Á sunnudagsmorgni heilsaði sólin loks almennilega upp á okkur hér við Úlfljótsvatn og skein svoleiðis gleðin úr litlu skátahjörtunum. Fyrir hádegi fóru öll í dagskrá og mótinu síðan slitið með stæl. Ekki sást annað en að börnin, foringjar, foreldrar og starfsfólk hafi notið sín í botn og séu sátt með helgina. Við í mótsstjórn erum allavegana mjög sátt með helgina og þökkum fyrir frábært Drekaskátamót! Fyrir hönd mótsstjórnar, Eva Rut Mótsstjórn, Birta Dís, Dagur Sverris, Eva Rut, Freyja Björgvins, Júlía Dögg, Silja Líf og Viktor Nói
June 1, 2026
Gleði og eftirvænting ríkti meðal skáta sem lögðu leið sína að Úlfljótsvatni laugardaginn 9. maí síðastliðinn. Þar fór fram Fjölskylduskátadagur sem Fossbúar skipulögðu. Á dagskránni voru meðal annars stafaratleikur, skátabingó og fjölbreyttir samvinnuleikir sem nutu mikilla vinsælda. Dagurinn endaði á skemmtilegri söngstund þar sem hreyfisöngvar settu svip sinn á stemninguna. Að sjálfsögðu var einnig boðið upp á hefðbundinn drekkutíma með kexi og kakói. Þátttakendur skemmtu sér vel og skipuleggjendur voru afar sátt við hvernig dagurinn heppnaðist.
April 29, 2026
Skátaþing var haldið í Brekkuskóla á Akureyri 10.-12. apríl síðastliðinn. Harpa Ósk Valgeirsdóttir, Skátahöfðingi setti þingið og ávarpaði þingheim en um 120 manns sóttu setninguna. Í ávarpi sínu lagði Harpa áherslu á að skátastarf sé einkar viðeigandi og mikilvægt fyrir ungmenni í tækniveröld nútímans og þá aðför sem æskulýðsfélög finna fyrir þar sem verið er að strika þau út úr skipuritum stjórnvalda sem virðast í auknum mæli einblína eingöngu á íþróttir. Skátahreyfingin þarf að standa saman, vera sýnileg og segja frá gildum sínum. Þá hvatti Harpa þingheim til að taka virkan þátt í dagskrá þingsins og kynnast svæðinu en Landsmót skáta verður haldið á Hömrum í sumar. Þá voru einnig góðir gestir viðstaddir og skemmtilegar kynningar í pontu. Kosningar í stjórn og ráð voru með nokkuð einföldu sniði þetta árið þar sem sjálfkjörið var í öll embætti og fagnað var með lófaklappi. Vegna frestunar á Skátaþingi vegna veðurs var brugðið á það ráð að prufukeyra rafræna þátttöku sem tókst nokkuð vel til. Örlitlir tæknilegir hnökrar áttu sér stað en það verður að teljast eðlilegt svona í fyrstu tilraun. Laugardagurinn hófst á hefðbundnum fundarstörfum þar sem farið var yfir ársskýrslu BÍS, starfsáætlun, ársreikninga og fjárhagsáætlun. Þá var komið að lagabreytingum en aðeins ein slík barst fyrir þingið og var það því afgreitt fljótt ásamt ályktun um að breyta heiti aldursbilsins Eldri skátar í Vættarskátar. Góðar og gagnlegar umræður áttu sér þó stað og góður andi var á þinginu. Eftir hádegi á laugardegi var boðið upp á smiðjur um nýja stefnu BÍS en undirbúningsvinna hefur verið í gangi allt frá síðasta Skátaþingi. Lagt var til yfirheitið Öll börn á Íslandi hafi kost á framúrskarandi skátastarfi og að grunnstoðir stefnunnar verði aðgengileiki, stuðningur og gæði. Boðið var upp á þrjár smiðjur þar sem markmiðið var að veita fólki innblástur um hvað skátar vilji sjá gert í undirflokkum stefnunnar. Rætt var um aðgengileika í skátastarfi, hver grunnur skátastarfs er og hvaða áhrif skátastarf getur haft í samfélaginu. Góð þátttaka var í smiðjunum og verður gaman að vinna úr þeim hugmyndum sem þarna komu fram í nýrri stefnu næstu árin. Á sunnudeginum var haldið á Hamra þar sem Skátagildið Kvistur, mótsstjórn og starfsfólk Hamra tóku vel á móti hópnum. Hópurinn gekk um svæðið í snjókomu, fékk kynningu á svæðinu og hvernig því verður skipt á Landsmóti. Óvænt snjókast brast út á miðri leið og má sjá að fólk skemmti sér konunglega. Endað var í pylsupartý áður en fólk hélt heim á leið.
April 11, 2026
Skátaþing sett á Akureyri

Share this article