Umsókn þátttakenda á Alheimsmót skáta í Póllandi 2027

February 2, 2026

LANGAR ÞIG AÐ KOMA MEÐ Á ALHEIMSMÓT SKÁTA Í PÓLLANDI SEM ÞÁTTTAKANDI?

Opið er fyrir umsóknir þátttakanda á alheimsmóti skáta í Póllandi 2027.

 

Hvað felst í því að vera þátttakandi á Alheimsmóti ?

Þátttakendur á alheimsmóti verða vera á aldrinum 14 – 17 ára þegar mótið byrjar 30. júlí 2027 (fædd á bilinu 30. júlí 2009 – 30. júlí 2013). Níu skátum er raðað saman í einn skátaflokk með einum foringja og fjórir flokkar saman mynda eina sveit.

Íslenski fararhópurinn mun fara út með 5 sveitir og því einungis 180 pláss fyrir íslenska þátttakendur. Fararhópurinn mun hittast fyrir ferðina á undirbúningsfundum og í sveitarútilegum þar sem hópnum er hristað saman og einnig verður farið yfir ferðalagið og dagskrá mótsins til að undirbúa þátttakendurna sem best.

Hér eru drög af ferðafyrirkomulagi hópsins með fyrirvara á breytingum þegar nær dregur ferðinni.

  • 27. júlí 2027 - IST flýgur út
  • 29. júlí 2027 - Aðalhópurinn flýgur út
  • 30. júlí 2027 - Mótssetning
  • 8. ágúst 2027 - Mótsslit
  • 9.-13. 2027 - Mótsslit

 

Hvað kostar ?

Verðið fyrir þátttakanda er 572.000 kr. Athugið að þetta er verð án flugs.

Innifalið í verði:

  • Þátttökugjöld til mótsins - 224.000,-
  • Eftirmótsupplifun í Kraká - 110.500,-
  • Einkenni - 32.000,-
  • Annar kostnaður - 205.500,-
  • Sameiginlegur búnaður og flutningur búnaðar til og frá móti
  • t.d. tjöld fyrir allan fararhópinn, sem hefur ekki verið síðustu mót
  • Sveitarstarf fyrir mót
  • Fararstjórn og undirbúningsferðir fararstjórnar til Póllands
  • Skrifstofu- og ófyrirséður kostnaður


Þau sem vilja taka þátt eru beðin um að lesa vel skilyðrin hér að neðan og fylla síðan út umsóknareyðublaðið. Umsóknarfresturinn er til og með  31. mars 2026 

 

Ef það eru einhverjar spurningar um hlutverkið þá hvetjum við ykkur til að hafa samband við fararstjórana á netfangið jambo2027@skatarnir.is. 


Skilyrði fyrir þátttakendur

  • Vera orðin 14 ára og ekki orðin 18 ára þegar mótið hefst, 30. júlí 2027
  • Hafa farið á a.m.k. fjögurra nátta skátaviðburð og gist í tjaldi allan tímann
  • Hafa unnið sér inn færnimerkin:
  • Skyndihjálp
  • Hnífur
  • Útieldun
  • Vegna víðáttumikils mótsvæðis þarf þátttakandi að vera í góðu líkamlegu formi og geta fengið a.m.k. 10 kílómetra á dag (nema ef um sérstök frávik er að ræða)
  • Meðmæli frá sveitarforingja og einum úr félagaþrennunni þar sem hún er starfandi í félaginu, annars félagsforingja
  • Góð heilsa þar sem að á mótinu er mikil útivera og dagskrá sem krefst mikillar hreyfingar í +25°C hita og því mikilvægt að þátttakendur séu líkamlega hraustir
  • Þekki skátalögin og geti haft þau að leiðarljósi í allri vegferðinni í kringum mótið og í samskiptum við aðra.
  • Hafa kynnt sér siðareglur Æskulýðsvettvangsins
  • Hafa kynnt sér samskipta – og siðareglur þátttakanda mótsins sem allir þátttakendur þurfa að lesa yfir og samþykkja áður en þau fara á mótið
  • Hafa kynnt sér 2. grein reglugerðar Bandalags íslenskra skáta um utanferðir skáta.
  • Taka þátt í undirbúningsfundum og/eða útilegum sveitarinnar og fararhópsins til að tryggja að þátttakandi sé vel upplýstur og undirbúinn fyrir ferðina t.d.:
  • Hittingur fararhópsins á Landsmóti skáta á Hömrum 2026
  • Sveitarútilegur
  • Undirbúningsfundir sveitarinnar
  • Geta borið allan farangurinn sinn í einum bakpoka (18-20 kg) með minni dagspoka í u.þ.b. 30 mínútur (möguleg ganga frá rútunni að tjaldsvæðinu)
  • Hafa andlega burði til að búa þétt við frumstæðar aðstæður í fjölbreyttri mannflóru og miklu áreiti í þrjár vikur fjarri foreldrum/forráðafólki
  • Hafa jákvætt viðhorf gagnvart nýjum reynslum, ólíkum menningarheimum og að kynna íslenskt skátastarf á alþjóðlegum vettvangi


Umsókn þátttakenda á Alheimsmót 2027

Nýlegar færslur
March 18, 2026
Skátaþing 2026 - frestun
March 18, 2026
Hulda Lárusdóttir hóf störf hjá Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn og tekur við verkefnum fráfarandi viðburðarstjóra, Heiðdísi Snorradóttur. Hulda er tölvunarfræðingur og hefur áratuga reynslu af foringjastörfum og stjórnarsetu, ásamt framkvæmdum skátamóta. Hulda mun vera mótsstjórn Landsmóts skáta á Hömrum innan handar ásamt því að sinna þeim fjölmörgu viðburðum sem Skátamót standa fyrir. Ragnar Auðun Árnason hóf störf hjá Bandalagi íslenskra skáta og Skátamótum þann 11. mars síðastliðinn. Starf hans deilist á Skátamót og skrifstofu BÍS. Ragnar tók virkan þátt í skátastarfi á yngri árum, sem foringi og svo starfsmaður á námskeiðum ásamt því að hafa haldgóða rekstrar- og viðburðastjórnunarreynslu. Ragnar er stjórnmálafræðingur og mun leiða matarúthlutun Landsmóts skáta á Hömrum og síðar sinna verkefnum hjá Skátamiðstöðinni. Við bjóðum Huldu og Ragnar innilega velkomin til starfa hjá okkur í Skátamiðstöðinni og hlökkum til samstarfsins á sama tíma og við þökkum Heiðdísi fyrir samstarfið.
March 12, 2026
Nýr alþjóðarfulltrúi bís hjá wosm
March 9, 2026
Reynir Tómas Reynisson
By Halldóra Skátarnir March 9, 2026
Björk Norðdahl

Share this article