Landsmót skáta í fullum gangi

July 22, 2026

Landsmót var sett á hömrum 20. júlí

Landsmót skáta var sett við hátíðlega athöfn á mánudagskvöld, 20. júlí. Um 1.600 manns taka þátt í mótinu með einum eða öðrum hætti. Þátttakendur koma frá 10 löndum auk Íslands og sjálfboðaliðar frá um 10 löndum leggja einnig hönd á plóg við framkvæmd mótsins. Á svæðinu er því skátar frá 19 löndum.


Á mótsvæðinu er risið sannkallað skátaþorp en hér má finna matvörubúð, heilsugæslu, kaffihús og aðra fjölbreytta þjónustu sem gerir þátttakendum kleift að njóta mótsins til fulls.


Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg svo öll geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Skátarnir taka þátt í ýmsum þrautum og leikjum sem reyna á sjálfstæði, en um leið samvinnu. Meðal dagskrárliða eru siglingar hjá siglingaklúbbnum Nökkva, heimsókn á söfn Akureyrar, að byggja tréhús, læra að húlla, drullubolti, kleinugerð við bál og ýmislegt fleira.


Hin margumtalaða Kakókeppni fór fram í gærkvöldi þar sem félögin kepptust við að framreiða besta kakóið. Í dómnefnd voru Þorsteinn Pétursson (Steini P) frá skátagildinu Kvisti, Ingimar Eydal stjórnarmaður Hamra og Harpa Ósk Valgeirsdóttir skátahöfðingi. Sigurvegari í kakókeppni Landsmóts 2026 er skátafélagið Kópar og fengu þau afhendan farandbikar Landsmóts til varðveislu næstu þrjú árin. Þá fengu Bison Brigade og Campfire Coyotes frá Kanada viðurkenningar fyrir sitt framlag.


Myndir segja meira en þúsund orð svo við leyfum þeim tala sínu máli.

Nýlegar færslur
October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september
By andrea • September 10, 2026
NÝTT DAGATAL TILBÚIÐ

Share this article