JOTA-JOTI 2025

January 20, 2026

Hvað er JOTA-JOTI?:



Alheimsmót skáta í loftinu og á netinu er stærsti stafræni skátaviðburðurinn og fer fram á ári hverju þar sem meira en 2 milljónir skáta skemmta sér saman og fá tækifæri til að kynnast betur tækni, samskiptum, tilveru skáta um allan heim, sjálfu sér og hvoru öðru.

Fyrir hverja er JOTA-JOTI:



Mótið er fyrir skáta á öllum aldri!


Dróttskátar og eldri geta tekið þátt sjálf en ætlast er til þess að skátar 12 ára og yngri geri það með stuðningi fullorðinna skátaforingja eða aðstandenda.

Hvar fer JOTA-JOTI fram?:



JOTA-JOTI á sér fyrst og fremst stað á heimasíðu viðburðarins. En þú getur tekið þátt hvaðan sem er!


Hluti dagskrár sem fengist er við á mótinu fer fram í raunheimum og hluti á netinu. Því skiptir bara máli að velja staðsetningu þar sem aðstaða er góð fyrir skátastarf og með nettengingu.

Hvernig tekur þú þátt?:


Það eru margar leiðir færar til að taka þátt.

  1. Taka þátt sem stærri hópur:
    Hægt er að taka þátt í stærri hópi skáta, það má t.d. fara í útilegu eða mæta einhvertímann yfir umrædda helgi saman í skátaheimilið með þinni skátasveit eða öllu skátafélaginu. Þetta er besta leiðin til að taka þátt fyrir skáta 12 ára og yngri.
  2. Taka þátt sem flokkur:
    Þú og aðrir áhugasamir skátar getið tekið þátt sem flokkur og fengið þá jafnvel afnot af skátaheimilinu yfir vissan tíma eða mælt ykkur mót heima hjá einhverju ykkar. Þetta er frábær leið fyrir dróttskáta og eldri. Ef skátar 12 ára eða yngri ætla að fara þessa leið til þátttöku er mikilvægt að fullorðinn skátaforingi eða aðstandandi sé með hópnum og styðji þau.
  3. Taka þátt sem einstaklingur:
    Dróttskátar og eldri geta tekið þátt á einstaklings grundvelli. Nóg er af dagskrá sem þarfnast þess ekki að vera í hóp. Þetta er góð leið fyrir dróttskáta og eldri en ekki er mælt með þessu fyrir skáta 12 ára og yngri.



Hvernig skrái ég (mig / skáta 12 ára eða yngri)?

Hvernig skrái ég hópinn minn?

Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article