Harpa Ósk er nýr skátahöfðingi

April 3, 2022

Harpa Ósk Valgeirsdóttir hefur tekið við sem skátahöfðingi og var henni vel fagnað á fjölsóttu Skátaþingi sem haldið er á Bifröst nú um helgina.   

„ Ég vil gera skátastarfið aðgengilegt öllum,”

segir Harpa og þar vísar hún m.a. til verkefna um að gera börnum af erlendum uppruna auðveldara að sækja skátastarf, sem og til fjölgunar skátafélaga á landsbyggðinni.  Hún segir að með skýrari dagskrárgrunni sem var kynntur á skátaþingi sé einnig skref stigið til að gera starfið aðgengilegra.   

Stærsta breytingin sem var kynnt er nýtt aldursbil í dagskránni, sk. Hrefnuskátar fyrir börn 5 – 7 ára og þar taka skátarnir þátt með foreldrum sínum, samhliða fjölskylduskátastarfi. Harpa Ósk hefur góða reynslu af fjölskylduskátastarfi en hún tekur þátt í slíku með dóttur sinni.  

Bjóðum eldri skáta velkomna til verkefna 

Harpa Ósk hefur verið virk í skátastarfi frá unga aldri, en hún segir að það sé ekki forsenda fyrir þátttöku fullorðinna í skátastarfi. Margir hafi komið inn í skátastarfið í gegnum starf barna sinna og haldið áfram. Harpa hvetur eldri skáta sem tóku sér hlé frá skátastarfi til að hafa samband við sitt skátafélag því það séu mörg áhugaverð verkefni sem þarfnast eldhuga.   

„Við bjóðum allra eldri skáta velkomna til verkefna,” segir Harpa Ósk. Verkefnin eru næg og fjölbreytt hvort heldur hjá Bandalagi íslenskra skáta eða hjá skátafélögunum. „ Áherslur okkar eru að auka gæði skátastarfsins, gefa fleiri börnum kost á þátttöku, efla fræðslu skátaforingjanna og bjóða fleiri velkomna til verkefna. Með þessum áherslum vonumst við til að skátahreyfingin jákvæð áhrif á sitt samfélag og stuðli að bættum heimi,” segir Harpa.      

Nýlegar færslur
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
October 19, 2026
Hefur þú gaman að því að takast á við nýjar áskoranir og taka þátt í skemmtilegu jólastarfi? Við leitum að hressum, hjálpsömum og úrræðagóðum jólaálfum til starfa í jólaskógi Sígræna Við leitum að skátum sem: hafa ríka þjónustulund og jákvætt viðmót sýna frumkvæði eru tilbúin að aðstoða við val á jólatré þjónusta viðskiptavini eru stundvís, áreiðanleg og tilbúin að bretta upp ermar hafa gaman að því að vinna með öðrum Helstu verkefni jólaálfa eru: aðstoða viðskiptavini afgreiðsla og almenn þjónusta halda jólaskóginum snyrtilegum og jólalegum stuðla að notalegri og eftirminnilegri upplifun Vilt þú verða hluti af jólaálfateyminu okkar? Sæktu um hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þór Þrastarson , framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!
September 14, 2026
dagur íslenskrar náttúru 16. september

Share this article