Breytingar á siðareglum Æskulýðsvettvangsins

August 18, 2022

Siðareglur Æskulýðsvettvangsins tóku breytingum í júní síðastliðnum en samkvæmt 2. grein laga BÍS eru siðareglur Æskulýðsvettvangsins þær siðareglur sem gilda fyrir allt starfsfólk og sjálfboðaliða Skátanna.

Mikilvægt er fyrir öll sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð. Siðareglur þessar snúa annars vegar að samskiptum og hins vegar að rekstri og ábyrgð. Gerist aðili brotlegur við reglurnar er heimilt að vísa honum úr starfi, tímabundið eða að fullu.

Breytingarnar byggja á breytingartillögu sem Skátarnir lögðu fram á aðalfundi Æskulýðsvettvangsins í apríl síðastliðnum og voru í framhaldi unnar af ráðgjafahópi Æskulýðsvettvangsins. Ráðgjafahópinn skipa aðilar frá öllum aðildarfélögunum; Skátarnir, Landsbjörg, KFUM og KFUK og UMFÍ.

Helstu breytingar voru eftirfarandi:

Breytingar sem snúa að samskiptum:

Þessum reglum var bætt við

  1. Starfsfólk, stjórnarfólk, sjálfboðaliðar eða aðrir sem gegna valdastöðum þurfa að vera meðvitaðir um ábyrgð sína og þann aðstöðumun sem staða þeirra skapar þeim.
  2. Hvers kyns kynferðislegt daður, orðbragð eða samneyti aðila í ábyrgðarstöðu gagnvart þátttakanda sem er yngri en 18 ára er með öllu óheimilt.
  3. Forðast skal kynferðislegt daður, orðbragð eða samband við sjálfráða þátttakendur, samstarfsfólk eða aðra aðila sem ábyrgðaraðilar gegna valdastöðu gagnvart. Komi til gagnkvæms ástarsambands er það á ábyrgð þess sem gegnir valdastöðu að gera stjórnendum sínum kunnugt um það.

Regla sem var áður númer 8, og fjallar um skyldu ábyrgðaraðila að fá leyfi fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá, var fjarlægð þar sem hún er í hluta reglanna sem fjalla um rekstur og ábyrgð og á frekar heima þar.

Reglu númer 14 var breytt og er nú:

Starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu sýna ábyrgð í rafrænum samskiptum og netnotkun. Ekki skal vera í rafrænum samskiptum við þátttakendur undir 18 ára aldri án vitneskju forsjáraðila þeirra og aðeins í tengslum við þátttöku þeirra í starfi félagsins. Öll samskipti skulu fara fram í gegnum viðurkenndar samskiptaleiðir.

Markmiðið með þessari breytingu er að vekja athygli á því að samskiptaleiðir í félögum sem okkar þurfa að vera skýrar og eiga sér stað með þeim hætti að við getum svarað fyrir þær. Með því að taka fram að samskipti eigi sér stað í gegnum viðurkenndar samskiptaleiðir er einnig betur hægt að stíga inn í þegar samskipti eiga sér stað á samfélagsmiðlum sem við viðurkennum ekki sem samskiptavettvang starfi með börnum.

Breytingar sem snúa að rekstri og ábyrgð

Þessum reglum var bætt við:

  1. Öllu starfi skal sinna með hagsmuni félagsins að leiðarljósi og standa skal vörð um markmið og heiður þess. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu sýna félaginu, samstarfsfólki, samstarfsaðilum og þátttakendum virðingu, sanngirni og trúnað í samskiptum sínum.
  2. Aldrei skal stefna heilsu eða öryggi starfsfólks og sjálfboðaliða í hættu. Ávallt skal sýna fyllstu aðgát og varkárni í starfi og koma í veg fyrir að starfsfólki og sjálfboðaliðum séu falin verkefni eða þau lendi í aðstæðum sem þau ráða ekki við.
  3. Allt starf skal unnið á opinn, upplýstan, gagnsæjan og lýðræðislegan hátt. Ávallt skal veita faglegar og réttar upplýsingar.
  4. Stjórnarfólk, starfsfólk og sjálfboðaliðar skulu gæta þess að sitja ekki beggja vegna borðs í málum er varða hagsmuni félagsins. Forðast skal að skapa þær aðstæður sem geta dregið óhlutdrægni þeirra í starfi í efa. Það á meðal annars við þegar félagið tilnefnir einstaklinga til að taka þátt í eftirsóttum verkefnum eða þegar samið er við starfsfólk, verktaka eða aðra þjónustuaðila.

Uppfærðar siðareglur má finna hér og á prentvænuformi hér.

Nánari upplýsingar um Æskulýðsvettvanginn og starfsemi hans er hægt að finna hér.

Nýlegar færslur
November 16, 2026
Þrettán rekkaskátar voru sæmd Forsetamerkinu við hátíðlega og skemmtilega athöfn á Bessastöðum síðastliðinn laugardag. Öll unnu þau að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, allt frá því að fara í útilegur, bæði innanlands og utan, skipuleggja og halda skátafundi og viðburði fyrir yngri skáta og fara 45 km. eða meira á eigin afli. Vegferðin er að jafnaði 2-3 ár og er haldið utan um hana í svokölluðu vegabréfi. Að lokinni vegferð afhendir forseti Íslands forsetamerkið við athöfn á Bessastöðum. Smári Hannesson og Svava Dröfn Davíðsdóttir fluttu hátíðarræðu, sem lesa má hér að neðan og Kristbjörg Katla Hinriksdóttir og Eydís Ósk Sævarsdóttir sungu . Forsetamerkishafar í númeraröð: 1489 | Svava Dröfn Davíðsdóttir | Skátafélagið Árbúar 1490 | Eiður Snær Óskarsson | Skátafélagið Hraunbúar 1491 | Eydís Ósk Sævarsdóttir | Skátafélagið Hraunbúar 1492 | Haukur Freyr Ólafsson | Skátafélagið Hraunbúar 1493 | Logi Jökulsson | Skátafélagið Hraunbúar 1494 | Melkorka Thea Rósenberg Þrastardóttir | Skátafélagið Hraunbúar 1495 | Nanna Sóley Ottósdóttir | Skátafélagið Hraunbúar 1496 | Smári Hannesson | Skátafélagið Hraunbúar 1497 | Þórður Jón Guðlaugsson † | Skátafélagið Hraunbúar 1498 | Þórir Snær Sigurðsson | Skátafélagið Landnemar 1499 | Bergur Vilhjálmsson | Skátafélagið Vífill 1500 | Birgir Óli Guðmannsson | Skátafélagið Vífill 1501 | Kristbjörg Katla Hinriksdóttir | Skátafélagið Vífill Hátíðarræða Virðulegi forseti, Just Björn, skátavinir og aðrir góðir gestir. Það er skemmtilegt tækifæri og stórkostlegur heiður að fá að flytja hugleiðingu hér á Bessastöðum. Tilefnið er alls ekki smátt og okkur langar að byrja á því að óska öllum forsetamerkishöfum innilega til hamingju með áfangann. ( Bravó bravissimó). Forsetamerkið sjálft er að sjálfsögðu einstaklega glæsilegt, svona silfurlitað og nett. En eins og klisjan kveður á um þá snýst þetta um ferðalagið en ekki áfangastaðinn, og ég held við getum öll verið sammála um það að það frábæra fyrirbæri sem forsetamerkisbókin er bjóði manni sannarlega upp á æðislegt ferðalag . Hún býður manni að leggja sitt af mörkum til samfélagsins, hún býður manni að læra og leika, hún býður manni að þroskast, hún býður manni á skyndihjálparnámskeið, alþjóðleg skátamót, í foringjastarf, fjallgöngur, ferðalög og í endalaus ævintýri – og þó það hafi ekki verið manni alveg jafn ljóst þegar maður var fimmtán ára að byrja í menntaskóla og reyna að fitta inn, þá væri óðs manns æði að þiggja ekki slíkt rausnarboð um ævintýri. Ævintýrin geta verið mismunandi. Sum ganga eins og í sögu en í öðrum gleymir maður svefnpokanum, aukafötunum, loftdælunni, hlýju sokkunum eða, tannkreminu. Þegar maður hefur gleymt einhverju einu sinni man maður yfirleitt eftir því næst. Nema tannkreminu. Tannkremið gleymist alltaf. En ævintýrin halda áfram og gleymdi svefnpokinn verður að skemmtilegri sögu. Allt í einu ertu kominn ofan í poka með gjafmildri vinkonu, eða gengur um í lánuðum ullarsokkum sem ná þér upp að hnjám. Enginn man eftir ferðunum þar sem allt gekk smurt. En allir muna eftir jeppaferðinni upp í Þrym. Þrír bílar, og enginn mundi eftir loftdælu. Svo enginn hleypti úr og allir sátu pikkfastir. Saman. Það er þarna sem bestu sögurnar verða til. Einhvern veginn komumst við alltaf áfram. Skátar eru nefnilega sérfræðingar í að leysa vandamál, sérstaklega þau sem þeir búa til sjálfir. Við gefumst ekki upp. Við finnum lausnir, hjálpumst að og hlæjum að öllu saman eftir á. Ég las pistil um daginn þar sem fjallað var um rannsóknir sem sýna að það er beinlínis hollt fyrir fullorðna að fara út að leika sér. Það minnkar streitu og bætir bæði lífsánægju og félagsleg tengsl. Skátastarf er sem sagt vísindalega studd heilsuefling. Þannig að næst þegar einhver spyr hvað við séum eiginlega að gera, rennblaut í tjaldi uppi á heiði, þá erum við bara að hugsa um heilsuna. Þess vegna skulum við halda áfram að leika okkur og lifa lífinu. Hér með okkur, í anda, er einstakur strákur sem kunni svo sannarlega að lifa lífinu. Þórður Jón var gríðarlega öflugur og sannur skáti. Góð manneskja inn að beini. Hann var mikill samferðarmaður minn og margra hérna inni í þessari þriggja ára vegferð, og raunar líka lífinu öllu. Það er ótal margt sem við getum lært af Þórði, og fyrst við erum að tala um vegferðir og ferðalög langar mig að vekja sérstaklega máls á því hvað Þórður var góður ferðafélagi, hvort sem það var í víðum eða bókstaflegum skilningi þess orðs, það var jafn þægilegt að elta drauma með honum eins og að sitja við hliðina á honum í flugvél. Og við sem erum skátar skiljum verðmæti þess mikla mannkosts að vera góður ferðafélagi. Bestu ferðafélagarnir eru þeir sem standa í öllu veseninu með okkur. Sem hlæja með okkur þegar jeppinn situr fastur eða þegar maður hvolfir kanónum á alveg lygnu vatni, mínútu eftir að vinkona manns sagði: „Ekki hvolfa bátnum.“ Ég ætla að teikna upp mynd fyrir ykkur. Mynd úr ferðalagi. Dagurinn er 25. júlí árið 2024. Ég hef ekki hugmynd um það hvaða vikudagur er. Lopapeysan sem mamma prjónaði á mig tekur sig vel út í þessum skandinavíska skógi og Aku gönguskórnir hafa aldrei verið þægilegri. Ég er staddur í Noregi. Með í för eru margir af mínum bestu vinum, skátaflokkurinn Straumendur sem er án efa sá fjallmyndarlegasti á öllu mótinu. Hvernig væri annað hægt? Þetta eru Þórður, Logi, Eiður, ég og fleiri snillingar eins og Kristófer Njálsson, en hann fór einmitt með hugleiðingu hér á Bessastöðum fyrir einu ári, þvílík fótspor að feta í. En allavega. Skátaflokkurinn Straumendur stiklar yfir tæra lækjarsprænu, arkar ótroðnar slóðir og fyrr en varir erum við komnir til Svíþjóðar. Við erum bókstaflega búnir að labba til Svíþjóðar. Næsta sem við vitum er að við okkur blasir smábær, eins og vin í eyðimörkinni. Við pöntum pítsu af eldri manni sem talar enga ensku og nammi til að eiga á heimleiðinni. Við erum eins saddir og sælir og við erum þreyttir og sveittir. Og það er einmitt þarna sem það gerist, í sólsetri þessara ófyrirsjáanlegu ævintýra sem einkenna skátana, að samtölin við vini manns ná ótrúlegustu hæðum. Ég man ekkert hvað við töluðum um, enda skiptir það kannski minnstu máli. Ég man bara tilfinninguna. Einhverskonar þakklætislækjarspræna sem verður að beljandi fljóti innra með manni. Þvílíkur dagur. Þvílík nærvera. Og þvílíkt ferðalag sem við deildum saman. Eins og rauðglóandi analógía fyrir skátastarfið í heild sinni. Kæru vinir. Þórður var einstaklega glaður og raunsær einstaklingur, og það besta sem við getum gert til að heiðra minningu hans er að lifa í hans anda. Þessi þakklætistilfinning sem þú varst að nefna, orðið núvitund lýsir henni kannski ágætlega? Mikið rétt. Sjálfur þekki ég konu sem talar gjarnan um það að hún finni hvergi fyrir meiri núvitund en einmitt í skátunum. Þessi kona fer varla út úr húsi án þess að hafa Lífið er núna armband um únliðinn á sér og með hana sem fyrirmynd hef ég tileinkað mér að gera slíkt hið sama. Lífið er nefnilega núna. Lífið er þegar við gleymum svefnpoka og tannkremi, sættum okkur við ullarsokka sem ná okkur upp að hnjám eða sitjum föst í jeppum leiðinni upp í Þrym. Skátahreyfingin í sjálfri sér, og þá sérstaklega vegferðin að forsetamerkinu, hvetur mann til þess að lifa í núinu. Hvað er meiri núvitund en að ferðast 50 kílómetra á eigin afli? Hvolfa bát eða að verja kvöldvöku með skátum frá annarri heimsálfu? Þetta er dagur þar sem við leyfum okkur að vera stolt af því sem við höfum afrekað og af vegferðinni sjálfri, og erum þakklát fólkinu sem gekk leiðina með okkur. Því ekkert okkar hefði klárað þessa bók eitt síns liðs. Á bak við þetta merki eru allir foringjarnir sem höfðu trú á okkur. Foreldrarnir sem skutluðu okkur og græjuðu mat þegar við höfðum ekki tíma til þess. Og vinirnir sem studdu við bakið á okkur í gegnum þetta allt saman. Þeir hvöttu okkur áfram á síðustu og erfiðustu metrunum í göngunni og voru til í allar vitleysurnar og skrýtnu hugmyndirnar sem urðu svo að skemmtilegustu ferðunum. Takk, kæru áheyrendur fyrir að hafa verið svona dugleg að halda ykkur í núinu í þessari hugleiðingu, enginn að kíkja á tiktok eða pískra. Við hvetjum ykkur til þess að halda því áfram í lífinu. Eða að minnsta kosti þar til næsta ræða er búin. Kæru skátavinir. Takk fyrir þessa vegferð, við hlökkum til þeirrar næstu.
November 3, 2026
Gróðursettum 1.285 tré í esjuhlíðum
Fjögur ungmenni standa saman og horfa yfir tjaldbúð á viðburði sem þau skipulögðu
By Sædís Ósk • October 22, 2026
Útkall - drekaskátamótstjórn
September 30, 2026
ferðasaga frá Tinna snæ
By Sædís Ósk • September 22, 2026
Nordic Baltic Youth Summit 2026 – Umsóknir eru opnar!

Share this article