Útilífsnámskeið 2026

staðsetning

Eyjafjörður

tímasetning

Fri, February 13 - 00:00

verð

17000

aldursbil

Dróttskátar, Rekkaskátar, Róverskátar

skráningafrestur

Feb 08 2026 00:00

Skíðasamband skáta stendur fyrir útilífsnámskeiði í Eyjafirði helgina 13. – 15. febrúar 2026.

Námskeiðið er ætlað 14 ára og eldri. 


Þátttakendur fræðast um ýmis atriði tengd vetrar útivist, svo sem klæðnað, búnað, mataræði, skyndihjálp, skíðabúnaði og margt fleira. Námskeiðið er að mestu leyti verklegt og fer fram að stórum hluta úti. Þátttakendur gista eina nótt inni, en seinni nóttina í tjaldi.


KYNNINGARFUNDUR

Kynningarfundur fyrir þátttakendur verður mánudaginn 26. janúar klukkan 20:00 í Hyrnu. Boðið verður upp á streymi. Þá fá þátttakendur útbúnaðarlista og nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðisins. 


SKRÁNING

Skráningu lýkur 8. febrúar og fer hún fram inn á Abler aðgangi Klakks, hér. Þátttökukostnaður er 17.000 kr. og innifalið í gjaldi er gisting, matur og námskeiðisgögn. Hámarks þátttakendafjöldi er 25 skátar. 


Ath. Mikilvægt er að taka fram að þátttakendur undir lögaldri verða að vera með ábyrgðaraðila/foringja með sér. 


RÚTA

Boðið verður upp á rútu á viðburðinn með þeim fyrirvara að nægur þátttakendafjöldi náist á viðburðinn.


Rútan fer frá Landnemaheimilinu, Háuhlíð 9,  föstudaginn 13. febrúar klukkan 12:00 og er reiknað með mæting á Akureyri um 17:30.


Rútan leggur af stað frá Akureyri, sunnudaginn 15. febrúar, klukkan 15:00 og við reiknum með heimkomu klukkan 20:30 í Skátamiðstöðina.


Vert er að taka fram að ábyrgðaraðili (skátaforingi) þarf að fylgja þátttakendum undir lögaldri


Verð fyrir rútuna er 9.000 kr. og mun BÍS halda utan um skráninguna í rútuna. Stofnuð verður sér þjónustu fyrir rútuna inn á BÍS Abler sem skráðum þátttakendum verður bætt við. Þar geta þau staðfest rútuna eða afþakkað hana.


GISTING

Fyrri nóttina verður gist í skátaskálanum Valhöll. Gistirýmið þar er sameiginlegur salur þar sem þátttakendur og ábyrgðaraðilar sofa, reynt verður eftir fremsta megni að skipta þátttakendum eftir aldri og kyni.


Seinni nóttina verður gist í tjöldum, ef aðstæður og veður leyfir.


Nánari upplýsingar á skrifstofa@klakkur.is


Frá 13.02.2026 til 15.02.2026