Tré og tjútt

tímasetning

Fri, September 18 - 16:30

verð

5.000 kr.

aldursbil

Dróttskátar (13-15 ára), Rekkaskátar (16-18 ára)

skráningafrestur

Sep 13 2026 23:59

Tré og Tjútt sló í gegn í fyrra svo ungmennaráð í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur ætla að endurtaka leikinn! Tré og Tjútt verður haldið í annað sinn helgina 18.- 20. september 2026. 


Við munum eiga góða stund saman í skóginum, gróðursetja tré í Esjuhlíðum, uppkvistun og snyrting á stígum og svo unnið með greinar og trjáefnivið til að skapa ýmisskonar hluti. 


Viðburðurinn kostar 5.000 kr. og er allur matur og dagskrá innifalið í verðinu. 

Skátarnir koma sér sjálf á staðinn og heim aftur og þau þurfa sjálf að koma með tjöld eða hengirúm til að gista í yfir helgina. Við mælum við með að skátarnir pari sig saman í tjöldin, við munum stofna Abler spjallrás fyrir þátttakendurnar til þess að koma skilaboðum áleiðis. Endilega sendið á okkur á ungmennarad@skatarnir.is eða í gegnum Abler ef þið eigið í erfiðleikum með að útvega tjöld eða tjaldfélaga. Við munum bjóða upp á nokkur hengirúm til þess að setja upp og gista í í skóginum en gott er að vera með pláss í tjaldi til öryggis, mikilvægt er fyrir þau sem ætla að gista í hengirúmi að taka samt sem áður með sér einangrunar dýnur.  


Mæting er við bílastæðið hjá Land og Skóg, Mógilsá, í Esjuhlíðum klukkan 20:00.