Skátasöngvakviss
staðsetning
Skátaheimili Kópa
tímasetning
Sun, March 01 - 03:00
verð
aldursbil
skráningafrestur

Skátakórinn stendur fyrir skemmtilegri spurningakeppni og tónleikauppákomu undir yfirskriftinni „SKÁTASÖNGVA KVISS” sem fer fram í skátaheimili Kópa, Digranesvegi 79, sunnudaginn 1. mars kl. 15:00.
Kórinn mun flytja nokkur vel valin skátalög og á milli laga verða lesnar upp spurningar sem tengjast því sem sungið er um og mögulega fljóta með ýmsar skemmtilegar spurningar um tengd efni.
Boðið verður upp á rjúkandi vöfflur með sultu og rjóma gegn vægu gjaldi.
Aðgangseyrir er engin en frjáls framlög í kórsjóð vel þegin.
Kjörið tækifæri fyrir vini og klíkur að mæta og keppa sem lið og auðvitað skorum við á öll skátafélög á höfuðborgarsvæðinu að senda amk. eitt lið til keppni.


