Sjálfboðaliðanámskeið

staðsetning

tímasetning

Sun, April 12 - 10:00

verð

5000

aldursbil

Eldri skátar

skráningafrestur

Apr 06 2026 00:00

Sjálfboðaliðanámskeið skátanna er byrjendanámskeið fyrir fullorðna sem vilja ganga til liðs við skátana og láta gott af sér leiða. Námskeiðið er kennt í tveimur hlutum. Þar færð þú að upplifa skátastarf á eigin skinni, njóta útiveru í góðum félagsskap og kynnast helstu grunnatriðum skátastarfsins með virkri þátttöku og reynslunámi. Þú þarft ekki að hafa neinn grunn í skátastarfi til þess að taka þátt í þessu námskeiði. Á námskeiðinu færð þú upplýsingar um hvernig þú getur tekið þátt í starfinu og lagt þitt af mörkum. 


Námskeiðið fer fram á eftirfarandi tímum: 

1. Hluti - Laugardaginn 11. apríl, kl 10:00 - 16:00

2. Hluti - Sunnudaginn 12. apríl kl. 10:00 - 16:00


Verð: 5.000 kr. 


Staðsetning

Námskeiðið verður haldið á höfuðborgarsvæðinu, nánari staðsetning verður tilkynnt eins fljótt og auðið er.


Innifalið í verðinu: 

Hádegisverður á öllum hlutum námskeiðsins, öll dagskrá og þinn eigin skátaklútur. 

Skráning fer fram hér og lokað verður fyrir skráningu á miðnætti 6. apríl. 


Um skátastarfið 

Skátahreyfingin er alþjóðleg uppeldis- og friðarhreyfing. Í skátastarfi fá börn og ungt fólk fjölbreytt tækifæri til þess að þroskast og dafna. Tilgangur skátastarfs er að valdefla ungt fólk til að vera sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu. Skátastarf er óformlegt uppeldis- og menntakerfi þar sem þátttakendur fást við hin ýmsu verkefni, taka þátt í leikjum, takast á við áskoranir og eflast félagslega í öruggu umhverfi. 


Skátahreyfingin um allan heim er keyrð áfram af sjálfboðaliðum og þetta góða starf væri ekki mögulegt án fullorðinna sjálfboðaliða sem leggja sitt af mörkum til þess að börn og ungmenni geti blómstrað í starfinu. Hlutverk fullorðinna í skátastarfi eru mjög fjölbreytt og aðkoma þeirra getur verið allskonar. Á námskeiðinu munu þátttakendur fá innsýn í hvaða hlutverkum fullorðnir gegna í skátastarfi.