Opinn kynningarfundur | Jamboree 2027

staðsetning

Skátaheimili Kópa

tímasetning

Mon, March 02 - 20:00

verð

aldursbil

Fálkaskátar, Dróttskátar, Eldri skátar

skráningafrestur


Fararstjórar íslenska fararhópsins á Alheimsmót skáta 2027 bjóða öllum áhugasömum skátum á þátttakenda aldri (elstu fálkarnir og dróttskátarnir, fædd á bilinu 30. júlí 2009 – 30. júlí 2013) og aðstandendum þeirra, ásamt eldri skátum sem gætu komið á mótið sem sjálfboðaliðar (18+) að koma á opna kynningarfundi í mars.


Staðfundur

Mánudaginn 2. mars klukkan 20:00 verður staðfundur í Skátaheimili Kópa, Digranesvegi 79, 200 Kópavogur.


Helstu upplýsingar um mótið og fararhópinn

Hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um mótið og fararhópinn inn á heimasíðu skátanna en einnig er hægt að fylgjast með hópnum bæði á Facebook og Instagram þar sem upplýsingar um mótið koma inn jafn óðum. 

Alheimsmót á heimasíðunni: skatarnir.is/alheimsmot-2027/

Facebook síða fararhópsins: Jamboree 2027 Poland - Icelandic Contingent

Instagram síða fararhópsins: @icelandiccontingent/