Kveikja - fyrir foringja skátafélaga
staðsetning
tímasetning
verð
aldursbil
Rekkaskátar (16-18 ára), Róverskátar (19-25 ára), Vættaskátar (26+ ára)
skráningafrestur

Kveikja verður haldin í Skátamiðstöðinni dagana 25. og 26. ágúst!
Með því að mæta á Kveikju gerum við skátastarfið í vetur enn betra og styðjum betur við okkar frábæra fólk í skátafélögunum sem gerir ævintýrið að veruleika.
Viðburðurinn á að kveikja neista hjá okkur fyrir komandi starfsár, skapa rými fyrir umræður um hlutverk okkar og annað sem að gagni kemur í vetur. Fræðsla verður um stuðning sem BÍS veitir, námskeið, stuðningsefni og viðburði sem standa skátafélögum til boða.
Miðvikudaginn 26. ágúst bjóðum við skátaforingjum að kveikja neistan fyrir veturinn og tengjast öðrum foringjum. Markmið seinna kvöldsins er að foringjar verði meðvituð um hvaða stuðningsefni er í boði, viti hvert þau eigi að leita fyrir ólík viðfangsefni ásamt því að veita þeim hvatningu fyrir komandi starfsári. Að auki verður reynt að veita þeim gagnleg tól við skipulagningu og utanumhald skátasveitar og búa til tengslanet við starfandi foringja í öðrum félögum.
Nánari upplýsingar um dagskrá, verð og skráningu verða aðgengilegar þegar nær dregur.
26. ágúst 2026


