Kveikja - fyrir stjórnarmeðlimi skátafélaga
staðsetning
tímasetning
verð
aldursbil
Róverskátar (19-25 ára), Vættaskátar (26+ ára), Stjórnir
skráningafrestur

Kveikja verður haldin í Skátamiðstöðinni dagana 25. og 26. ágúst!
Með því að mæta á Kveikju gerum við skátastarfið í vetur enn betra og styðjum betur við okkar frábæra fólk í skátafélögunum sem gerir ævintýrið að veruleika.
Viðburðurinn á að kveikja neista hjá okkur fyrir komandi starfsár, skapa rými fyrir umræður um hlutverk okkar og annað sem að gagni kemur í vetur. Fræðsla verður um stuðning sem BÍS veitir, námskeið, stuðningsefni og viðburði sem standa skátafélögum til boða.
Þriðjudaginn 25. ágúst fá stjórnir skátafélaganna frábært veganesti og stemningu fyrir veturinn. Markmið þess kvölds er að hjálpa stjórnarmeðlimum að undirbúa sig fyrir komandi starfsár og veita þeim gagnleg tól til að stilla saman strengi í starfi skátafélagsins þeirra.
Nánari upplýsingar um dagskrá, verð og skráningu verða aðgengilegar þegar nær dregur.
25. ágúst 2026


