Skátafélagið Kópar 80 ára
staðsetning
tímasetning
verð
aldursbil
skráningafrestur

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði Hjálparsveitar skáta í Kópavogi, Tónahvarfi 8, 203 Kópavogi.
Öllum skátum ásamt öðrum vinum og velunnurum félagsins er boðið að fagna með okkur á þessum merku tímamótum. Skátar úr Kópum sá sjá um dagskránna og verður mikið fjör. Að sjálfsögðu verður afmæliskaka og að lokum kvöldvaka að skátasið.
Dagskrá (með fyrirvara um breytingar):
13:00 - Hús opnar
13:30 - Formleg afmælisdagskrá í Fjallasal, ræður o.fl.
14:00 - Afmæliskaka og kaffiveitingar
15:00 - Hátíðarkvöldvaka með skátasöngvum og dagskrá
Endilega deilið þessum viðburði. Við hlökkum til að sjá ykkur öll þann 22. febrúar!


