Fjölskylduskáta-dagurinn 2026
staðsetning
tímasetning
verð
aldursbil
skráningafrestur
Samvera og samvinna á Úlfljótsvatni í boði Fjölskylduskátasveitar Fossbúa.
Fjölskylduskátadagurinn verður haldinn á Úlfljótsvatni laugardaginn 9. maí kl. 13-15
Skátafélagið Fossbúar eru gestgjafar fjölskylduskátadagsins í ár með Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni en þetta er í fyrsta skipti sem haldinn er opinn fjölskylduskátadagur með þessi sniði.
Dagskráin byrjar kl. 13 á Úlfljótsvatni og við söfnumst saman á planinu við Strýtuna og dagurinn endar svo kl.15.
Skátarnir munu fá að hlaupa um svæðið að taka þátt í samvinnuleikjum, prófa þrautabrautina og svo verður að sjálfsögðu skátakex, skátakakó og skátasöngvar!
Athugið að dagskráin fer fram að öllu leyti utandyra og því mikilvægt að vera klædd eftir veðri. En nánari dagskrá kemur þegar nær dregur.
Skráning á daginn fer fram inn á Abler skráningarsíðu skátanna en mikilvægt er að skrá alla í fjölskyldunni sem ætla að mæta svo hægt sé að fá rétta fjöldatölu þátttakenda fyrir efnivið í dagskrá og svo magni af kakói og kexi.


