Fálkaskátadagurinn
tímasetning
Sat, November 07 - 11:00
verð
0 kr
aldursbil
Fálkaskátar (10-12 ára)
skráningafrestur
Oct 24 2026 00:00

Fálkaskátadagurinn er árlegur viðburður sem haldinn er fyrstu helgina í nóvember. Skátafélög skiptast á að halda daginn þar sem þau bjóða fálkaskátum landsins í heimsókn í sitt hverfi/bæjarfélag þar sem fálkarnir taka þátt í dagskrá og gleðjast saman.
Gestgjafar Fálkaskátadagsins í ár er Skátafélag Akraness og verður dagurinn haldinn 7. nóvember 2026 á Akranesi. Mikilvægt er að mæta klædd eftir veðri en dagskráin mun fara fram utandyra og með nesti fyrir hádegismat.
Dagskrá er eftirfarandi en gæti tekið breytingum:
- 11:00 - Mæting á Akraness
- Dagskrá um Akranes, söngvaka og kakó
- 15:30 - slit
Útbúnaðarlisti:
- Skátaklútur
- Góðir skór fyrir útiveru um Akranes
- Hlý innanundir föt (föðurland, hlý peysa)
- Regnheld utanyfir föt (úlpa/regnjakki/hlífðarbuxur)
- Vettlingar, buff/trefill, húfa
- Dagspoki fyrir nesti (hádegismatur+snarl)
- Vatnsbrúsi
- Kakóbolli


