Ds. Fimmvörðuháls

staðsetning

Fimmvörðuháls og Básar í Þórsmörk

tímasetning

Fri, June 12 - 00:00

verð

14.000 kr.

aldursbil

Dróttskátar

skráningafrestur

May 03 2026 00:00

Æfingaferðir

Stefnt er að því að fara í amk. 1-2 æfingaferðir fyrir ferðina og verða þær auglýstar síðar. Ekki verður neinn aukakostnaður við æfingaferðirnar nema að koma sér á staðinn.


DAGSKRÁ

Föstudagurinn 12. júní

Leggjum af stað klukkan 10 um morguninn í rútu frá Landnemaheimilinu Háuhlíð 9 áleiðis á Skóga við Skógafoss undir Eyjafjöllum. Mæting er klukkan 09:45. Þegar dróttskátarnir eru farnir úr rútunni við Skógafoss heldur hún áfram inn í Bása í Þórsmörk með tjöld, morgunmat á sunnudeginum og annan farangur sem maður vill hafa kláran eftir gönguna.

Við tökum allan daginn í að ganga upp með Skógá, virða fyrir okkur 35 flotta fossa og skemmta okkur með skemmtilegu fólki.

Hægt er að velja um að gista í annað hvort Fimmvörðuskála Útivistar sem staðsettur er uppi á efsta punkti hálsins í 1.036 metra hæð eða í Baldvinsskála Ferðafélags Íslands sem staðsettur er í 800 metra hæð. Í Fimmvörðuskála eru 18 rúm og í Baldvinsskála eru 16 svefnpláss á svefnlofti auk gólfpláss niðri. Allir skálarnir eru bókaðir fyrir okkur. Þar gistum við fyrri nóttina.

Laugardagurinn 13. júní

Göngum frá skálunum og niður í Bása í Þórsmörk. Gríðarlega falleg leið sem byrjar á snjó á hálsinum milli tveggja jökla Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Kíkjum á nýju tindana Magna og Móða sem urðu til í eldgosinu 2010 og eru því yngri en dróttskátarnir. Röltum niður í Bása Þórsmörk og tjöldum þar.

Grillum, skoðum okkur um og syngjum í Básum um kvöldið en umfram allt njótum lífsins með skemmtilegum dróttskátavinum.

Sunnudagurinn 14. júní

Röltum mögulega eitthvað í kring og göngum frá dótinu í rútuna áður en við leggjum af stað í bæinn um hádegisbilið. Draumurinn er að ganga inn í Stakkholtsgjá og / eða í Merkurkeri þar sem við vöðum upp á sem rennur í gegnum helli (mæta með sunddót).

Komum aftur í Landnemaheimilið um kvöldmatarleytið og byrjum að láta okkur hlakka til landsmóts skáta í júlí þar sem við hittumst aftur.


Gisting

Það eru 40 sæti í rútunni en bara 34 gistipláss í skálunum auk foringja. Við höfum því rými fyrir um 30 þátttakendur og 5-8 gangandi foringja. Gisting í Baldvinsskála styttir aðeins leiðina á föstudeginum, en lengir hana aðeins á laugardeginum.


Kostnaður

Verðið er 14.000 kr. Það sem gerir okkur kleift að hafa þetta svona ódýrt er að BÍS/Styrktarsjóður skáta greiðir rútureikninginn sem er stóri kostnaðurinn við mótið. Takk fyrir það. 

Innifalið er rúta, tjaldstæði í Básum og sameiginlegur matur á laugardagskvöldið. Það er ágætt að hafa með sér smá "sjoppupening" með sér ef við tökum pissustopp á Hvolsvelli á föstudaginn og sunnudaginn.

Þátttakendur koma sjálfir með annan mat, þ.e. göngunesti föstudag og laugardag og morgunmat, smánesti og sjoppupening á leiðinni í bæinn á sunnudag.


Útbúnaður

Klæðnaður: Nauðsynlegt er að vera vel klædd á göngunni í ullarnærfötum og ullarsokkum næst sér (innsta lag), góðum peysum/jökkum (t.d. flíspeysu) og buxum sem fljótar eru að þorna (millilag) og með regnheld föt sem anda (jakka og buxur) (ysta lag). Mikilvægt er að vera í góðum gönguskóm og vera búin að ganga á þeim áður. Góð húfa og vettlingar.

Göngupoki (mikilvægt að hafa hann sem léttastan): Á göngunni þarf að vera með bakpoka sem ber svefnpoka, aukaföt, göngunesti, vatnsbrúsa (750-1000 ml.), tannbursta og höfuðljós. Lyf og annað nauðsynlegt til einnar nætur. Það getur verið gott að hafa létta aukaskó til að skipta í ef skórnir klikka. Hælsærisplástur. Göngupokinn þarf að vera með góðri mittisól.

Rútutaska : Önnur taska fer með rútunni beint inn í Bása. Í henni er gott að hafa föt til að fara í þegar við komum á áfangastað í Básum á laugardaginn. Einnig sunddót til að vaða í Merkurkeri. Tjalddýnu. Þá þurfa þátttakendur og foringjar að tryggja að þeir hafi pláss í tjaldi seinni nóttina.


Nánari upplýsingar

Hikið ekki við að spyrja ef eitthvað er.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viktor Úlfarsson, mótsstjóri og dróttskátaforingi í Landnemum á Abler, í netfangi siggiulfars@gmail.com, síma 854-0074 eða eftir öðrum leiðum – sem og aðrir foringjar í ferðinni.



12.-14. júní 2026