DróttKraftur

tímasetning

Fri, October 02 - 12:15

verð

21.000 kr.

aldursbil

Dróttskátar (13-15 ára)

skráningafrestur

Sep 29 2026 23:59

Á þessu námskeiði fá dróttskátar þjálfun í að efla leiðtogafærni og samskiptahæfni sína. Þau fræðast um starf skátasveitar og kynnast hugtökunum PGM (Plana gera meta) og ÆSKA (Ævintýri, Skemmtilegt, Krefjandi, Aðgengilegt) ásamt því að vinna með sjálfbærni og umhverfisvernd. 


Dagskrá Dróttkrafts byggist á leikjum, reynslunámi og samvinnu skátanna í flokkum. Þannig fá skátarnir tækifæri á því að kynnast öðrum dróttskátum á landinu, æfa sig í því að vera leiðtogar á meðal jafningja og taka þátt í lýðræðislegu starfi. Allt námskeiðið er byggt upp með reynslunámi (‘Learning by doing’) þar sem þátttakendur fá að taka þátt og prófa og læra af reynslunni. 


Dróttkraftur fer fram í Grunnskólanum í Grundafirði