Drekaskátamót 2026
staðsetning
tímasetning
verð
aldursbil
skráningafrestur

Drekaskátamót 2026 er haldið á Úlfljótsvatni helgina 5. - 7. júní með þemanu Sjónræningjar.
Mótið er líkt og fyrri mót tvær nætur og er þátttökugjaldið 11.000 kr. Innifalið í verðinu er öll dagskrá, gistigjald og sameiginleg kvöldmáltíð bæði á föstudegi og laugardegi.
Athugið að flest félög stofna yfirleitt sér hóp innan Ableraðgangi félagsins þar sem þau rukka sér fyrir til dæmis flutning og ferðalag á Úlfljótsvatn, sameiginleg einkenni og matarkostnað utan kvöldmatars.
Skráningar
En við skráningu er mikilvægt er að velja rétt skátafélag svo skátafélögin sjái skráningu sína skáta.
Vakin er athygli á því að stundum vilja sum félög halda sjálf utan um alla skráningu og rukkað fyrir bæði mótsgjald og sameiginlegan kostnaði hjá sér og því mikilvægt að fylgjast með hjá sínu skátafélagi hvernig þau vilja halda utan um skráningar.
Dagskrá og undirbúningur
Dagskrá verður með svipuðu sniði og hefur tíðkast en nánari upplýsingar um ítarlega dagskrá munu berast til skátafélaganna í upplýsingabréfum mótstjórnar.
Fyrir skátafélögin
Skátafélögin eru beðin um að senda upplýsingar um fararstjóra og foringja á Skátamiðstöðina svo hægt sé að bæta þeim inn á skráningasíðunni sem fyrst svo fararstjórarnir geti fylgst með skráningum sinna skáta.
Félögin fá einn frían foringja fyrir hverja tíu skáta sem eru skráð á félagið.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við drekaskátamótstjórnina á netfanginu : drekaskatamotstjorn@skatarnir.is
Fararstjórafundur verður auglýstur þegar nær dregur.
Fyrir sjálfboðaliða
Sér skráning verður fyrir sjálfboðaliða mótsins.
Sjálfboðaliðar geta verið á rekkaskátaaldri eða eldri en öll sem eru yfir 18 ára verða að skrifa undir sakavottorðsheimild hjá BÍS.
Starfsfólk á drekaskátamóti tekur þátt í uppsetningu og frágangi mótsins, keyrir dagskrá undir leiðsögn mótsstjórnar og sinnir öðrum tilfallandi verkefnum. Auk þess er mótið fullt af fjöri og góðri stemningu, þar sem gefst tækifæri til að kynnast nýju fólki og njóta samveru í skemmtilegu umhverfi.
5.-7. júní 2026


