Afmæli skógræktar á Úlfljótsvatni

staðsetning

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni

tímasetning

Sun, July 05 - 14:00

verð

aldursbil

Stjórnir, Vættaskátar (26+ ára), Róverskátar (19-25 ára), Rekkaskátar (16-18 ára), Dróttskátar (13-15 ára), Fálkaskátar (10-12 ára), Drekaskátar (7-9 ára), Fjölskylduskátar

skráningafrestur



Ævintýrið í skógrækt við Úlfljótsvatn – afmæli

 

Þeir sem eru eldri en tvævetra hafa séð breytingar á Undralandi Skáta við Úlfljótsvatn. Þar sem vindurinn fékk áður að leika lausum hala eru nú skógur og skjólbelti sem hafa breytt ásýnd og loftslagi.

Ævintýrið hófst einn sumardag fyrir 40 árum. Góður hópur skáta og fjölskylda Helga Tómassonar fv. skátahöfðingja mætti til að hefja gróðursetningarátak sem staðið hefur síðan, hin seinni ár í samstarfi við Skógræktarfélaga Íslands.

 

Gróðursett var í fyrsta lundinn 5. júlí 1986 og var hann kenndur við  Helga Tómasson.

Það var Helgi sem skátahöfðingi  sem hafði komið því til leiðar árið 1941 að hópur undir stjórn Jónasar B. Jónssonar hóf landnám skáta við Úlfljótsvatn.

Skógræktarfélag Skáta að Úlfljótsvatni var svo stofnað árið 1987 og stóð að baki víðtækri ræktun á svæðinu, oft í tengslum við fjölmenn skátamót. Félagið starfar enn og yrkir landið.

 

Skógræktarfélag Íslands hefur nú komið sér fyrir á jörðinni Úlfljótsvatni og staðið að  ræktunarstörfunum þar undanfarin mörg ár. Samstarfið milli Skógræktarfélagsins og skátanna þessara aðila er gott og uppbyggilegt.

 

Við minnumst 40 ára frá upphafi skógræktar við Úlfljótsvatn með táknrænni gróðursetningu í lundi Helga að Úlfljótsvatni sunnudaginn 5. júlí nk. kl. 14:00.

 

Helgi Þórsson segir frá afa sínum og skógræktarstarfi hans og greint verður árangri og áformum í skógrækt og annarri starfsemi við Úlfljótsvatn.

 

Boðið verður upp á veitingar í gamla Gilwellskálanum í samstarfi Skógar- og Gilwellskáta.  

 

Mæting í lundi Helga Tómassonar sunnan við KSÚ.

Verið velkomin!

 

Skógræktarfélag skáta á Úlfljótsvatni