Umhverfisstefna
Kynningar frambjóðenda
New Paragraph
New Paragraph
Afgreitt á ungmennaþingi 2026
New Paragraph
Dagskrá
Tillögur til afgreiðslu á skátaþingi
New Paragraph
Umhverfisstefna Bandalags íslenskra skáta
Samþykkt á stjórnarfundi BÍS 28. maí 2019
SÝN:
Aðalmarkmiðið er að við allar ákvarðanatökur, framkvæmdir, rekstur, innkaup og aðra starfsemi á vegum skátanna skuli leitast við að halda neikvæðum áhrifum á umhverfið í lágmarki. Þessi stefna er fyrir alla skátastarfsemi á Íslandi.
Með því að fylgja skrefunum sem gert er grein fyrir hér fyrir neðan mun Bandalag íslenskra skáta reyna að gera sinn hlut í að byggja betri heim og vera fyrirmyndir fyrir aðra í samfélaginu í umhverfisvernd.
Markmið:
- Að þekking og vitund um umhverfismál og umhverfisvæna lífshætti verði aukin með fræðslu fyrir skáta.
- Að lögð sé áhersla á vistvæn innkaup á vörum, þjónustu, framkvæmdum og ráðgjöf.
- Að auka notkun á úrgangsmetakerfinu og draga þannig úr hvers kyns sóun verðmæta, myndun úrgangs og stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu.
- Að skátarnir taki meiri þátt í samfélagsverkefnum sem hafa jákvæð áhrif á umhverfið.
- Að lágmarka þau neikvæðu umhverfisáhrif sem verða vegna notkunar á samgöngutækjum á vegum BÍS.
- Að miðla þessari stefnu út á við.
- Að endurmeta og endurbæta þessa stefnu eftir því sem við á svo að BÍS geti haldið áfram að þróast í umhverfismálefnum.
Skref í átt að markmiðunum:
- Að þekking og vitund um umhverfismál og umhverfisvæna lífshætti verði aukin með fræðslu til skáta.
- Búa til dagskrárefni sem styður skátafélögin og foringjana í að koma þessari stefnu í verk.
- Tryggja að umhverfismál komi fram í allri fræðslu þar sem það er viðeigandi.
2. Að lögð sé áhersla á vistvæn innkaup á vörum, þjónustu, framkvæmdum og ráðgjöf
- Velja umhverfismerktar vörur og þjónustu umfram annað.
- Versla matvöru úr nærumhverfi þegar hægt er og minnka þ.a.l. kolefnisfótspor.
- Byrja á því að gera umhverfismat (EIA) áður en gerðar eru einhverjar framkvæmdir á vegum skátanna.
3. Að auka notkun á úrgangsmetakerfinu og draga þannig úr hvers kyns sóun verðmæta, myndun úrgangs og stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu.
- Flokka að minnsta kosti pappa, plast, lífrænan úrgang, málm, flöskur og dósir í Skátamiðstöðinni, skátaheimilum og á viðburðum.
- Minnka pappírsnotkun þar sem hægt er og endurnýta og endurvinna pappírinn eftir að búið er að nota hann.
- Nota vatn, rafmagn, olíu, gas og við á skilvirkan og sparsaman hátt.
- Reyna að fá lánað/gefins hjá öðrum innan skátanna áður en keypt er eitthvað nýtt.
4. Að skátarnir taki meiri þátt í samfélagsverkefnum sem hafa jákvæð áhrif á umhverfið.
- Vera opin fyrir því að taka þátt í verkefnum sem hafa jákvæð umhverfisáhrif eins og t.d. landgræðslu og plokk.
- Sýna frumkvæði og skipuleggja svona verkefni í nærumhverfi skátafélaganna.
- Skilja alltaf við staði í betra ástandi heldur en þegar komið var að þeim þegar farið er í útilegur eða aðrar ferðir.
5. Að lágmarka þau neikvæðu umhverfisáhrif sem verða vegna notkunar á samgöngutækjum á vegum BÍS.
- Nota fjarfundabúnað þegar hægt er til að minnka kolefnislosun vegna flugferða.
- Halda utan um notkun bíla á vegum BÍS og kolefnisjafna hana.
- Birta árlega yfirlit yfir ferðir á vegum BÍS og hvernig þær voru kolefnisjafnaðar.
- Hvetja einnig skátafélögin til að kolefnisjafna sínar ferðir.
6. Að miðla þessari stefnu út á við
- Vera fyrirmynd fyrir önnur samtök í umhvefismálum og umhverfisfræðslu.
- Aðstoða erlenda skátahópa sem koma til Íslands við að minnka umhverfisáhrif sín. t.d. með því að virkja þau í umhverfisverkefnum og kolefnisjafna þannig ferð sína.
- Sýna á samfélagsmiðlum skátanna skrefin sem verið er að taka með þessari stefnu.
7. Að endurmeta og endurbæta þessa stefnu eftir því sem við á svo að BÍS geti haldið áfram að þróast í umhverfismálefnum.
- Þróa stefnuna eftir því sem nýjar upplýsingar og ný tækni kemur í ljós.
- Fylgjast með hvernig gengur að innleiða þessi skref í félögunum.
- Endurmeta reglulega hvort eitthvað vanti í stefnuna eða hvort einhverju sé ofaukið.


