Dagskrárramminn og markmiðaflokkarnir
Dagskrárhringurinn
Hlutverk dagskrárrammans er að auðvelda skátaforingjum að plana dagskrárhringinn með skátunum sjálfum.
Æ.S.K.A. og PLANA-GERA-META eru tól til þess.
Dagskrárhringurinn er gott verkfæri til að halda utan um markmið og verkefnaval og hjálpar skátunum að skipuleggja starfið sitt
Öll verkefni sem skátaflokkurinn eða skátasveitin takast á við þurfa að vera ævintýraleg, skemmtileg, krefjandi og aðgengileg (ÆSKA) fyrir hvern þann skáta sem tekur þátt. Ef verkefnið uppfyllir ekki þessi skilyrði þá þarf að aðlaga verkefnið betur að hópnum áður en farið er af stað.
Hvert verkefni inniheldur stig undirbúnings (PLANA), framkvæmdar (GERA) og endurmats (META) og er það hlutverk skátaforingja að styðja skátana við þessi stig út frá þeirra forsendum.
Þetta ferli verkefnavals, frá því að flokkurinn sest saman til að skipuleggja næsta ævintýri, velur sér færnimerki til að takast á við þessa önnina eða setur sér langtímamarkmið, er einn dagskráhringur.
PLANA - GERA - META
hjálpar við að þróa frábæra dagskrá, deila ábyrgð hópsins og búa til fullt af nýjum tækifærum.

Plana
- Ákveðið hvað þið ætlið að gera
- Ákveðið verkaskiptingu
- Finnið út hvaða búnað þið þurfið
- Finnið út hvaða færni þið þurfið
- Gerið áætlanir
- Fáið hjálp eftir þörfum
Gera
- Tryggið að allir hafi hlutverk
- Prófið nýja færni
- Fylgið áætluninni með sveigjanleika
- Hafið gaman
- Vinnið saman sem ein heild
Meta
- Takið ykkur smástund til að endurmeta verkefni
- Hvað heyrðir þú, hvað sástu, hverju tókstu eftir og hvað fannst þér skemmtilegast við ævintýrið þitt?
- Hvað fór ekki eftir áætlun?
- Hvað myndir þú gera öðruvísi næst?
- Talið um hvað ykkur tókst að gera
- Þakkið öllum sem tóku þátt og hjálpuðu
ÆSKA
Hvernig gerum við skátastarf ævintýralegt, skemmtilegt, krefjandi og aðgengilegt?
Skátastarf er vegferð sem byggir á ungmennastarfi sem er sérsniðið að hverjum og einum. Hvert skref áfram er hannað til þess að bæta ofan á vitneskju, þekkingu og færni aldursbilsins fyrir neðan. Á þessari vegferð pössum við upp á að skátastarfið bjóði upp á verkefni sem eru ævintýraleg, skemmtileg, krefjandi og aðgengileg.
Þessi slagorð geta gert hvaða aðstæður sem er betri. Það er hægt að nýta þau til að prófa nýjar hugmyndir, dagskrá og verkefni. Allt innan skátastarfsins ætti að innihalda slagorðin fjögur, ekki aðeins verkefnin heldur einnig skátafundir, viðburðir og útilegur!


Ævintýri er ögrandi og krefjandi reynsla sem ýtir einstaklingnum út fyrir þægindarammann sinn
Ævintýri getur verið:
- Að fara á nýjan stað í fyrsta skipti
- Að leiða verkefni
- Að leysa vandamál
- Að búa til eitthvað úr engu

Að skemmta sér er ekki eini tilgangur skátastarfs, markmiðið er að hafa gaman á meðan við stundum skátastarf
Tilgangur með skemmtun getur verið að:
- Nota táknrænan ramma fyrir skátastarf
- Að fá nýjar hugmyndir til að búa til einstakar og eftirminnilegar minningar
- Að sjá til þess að allir séu með
- Reyna eitthvað nýtt

Krefjandi reynsla reynir á og eykur færni hvers og eins sem stuðlar að þroska einstaklingsins
Krefjandi reynsla er sú sem:
- Er viðeigandi fyrir aldur og færni
- Hefur ekki verið gerð á sama hátt með sömu einstaklingum og áður
- Hjálpar öllum að auka færni sína
- Getur falið í sér mismunandi verkefni og ábyrgð fyrir hvern einstakling

Aðgengi gengur út á það að vera hluti af heild, eiga auðvelt með þátttöku og hafa aðgengi til að þjálfa færni sína
Hugleiddu hvort skátastarfið sé aðgengilegt öllum:
- Sjáðu til þess að allir geti verið með
- Skoðaðu hvernig er hægt að aðlaga verkefnin svo það sé aðgengilegt öllum
- Mismunandi hlutverk í hópvinnu og verkefnum leyfir öllum að vera hluti af heild, en eftir þeirra getu
Markmiðaflokkarnir
Hvernig getur skátahreyfingin eflt börn og ungmenni þannig að þau fái tækifæri til að þroska og þróa hæfileika sína og getu til að verða sjálfstæð og virk í samfélaginu?
Þegar við leyfum börnum og ungmennum að spreyta sig á fjölbreyttum verkefnum í skátastarfi, sjáum við þau vaxa á öllum sviðum. Til þess að tryggja að skátastarfið reyni á öll þroskasvið einstaklingsins notum við markmiðaflokkana fjóra þegar við veljum viðfangsefni skátanna.
Þegar við tölum um framfarir einstaklingsins innan skátahreyfingarinnar þýðir það að við viljum hjálpa börnum og ungmennum að þroskast innan þessara fjögurra sviða eða markmiðaflokka: leiðtogafærni, hemurinn, tilveran og skapandi hugur. Þessir fjórir flokkar taka saman á einfaldan hátt markmið skátahreyfingarinnar til þess að stuðla að þroska einstaklingsins innan þroskasviðanna fimm: vistmunaþroska, félagsþroska, tilfinningaþroska, andlegs þroska og líkamlegs þroska.
Leiðtogafærni
Frá upphafi fær skátinn tækifæri til að leiða hóp jafnaldra og hvatningu til að taka af skarið í samstarfi og lausnaleit. Til að byrja með fær skátinn ábyrgð á hluta verkefnum flokksins en smátt og smátt gefst tækifæri að spreyta sig á flóknari verkefnum. Stærri verkefni geta verið t.d. að vera sveitarforingi eða stjórna stórum viðburðum.
Hópurinn
Flokkastarf gefur færi á að æfa sig í samvinnu í litlum hópum og taka virkan þátt í starfinu á eigin forsendum. Hver og einn hefur sitt hlutverk innan flokksins og hópurinn velur sér verkefni í sameiningu.
Samskipti
Skátarnir fá tækifæri til að kynnast ólíkum einstaklingum, mynda ný vinatengsl og átta sig á eigin tilfinningum og annarra. Skátarnir læra að setja sín eigin mörk og eignast aukin skilning og virðingu á mörkum annarra.
Leiðtogafærni

Lausnaleit
Skátarnir öðlast færni í að leysa flókin verkefni innan skátastarf sem utan. Viðfansefni og verkefni eru bæði huglæg og verkleg. Skátarnir fá öryggi í að prófa sig áfram og finna nýjar lausnir á alls kyns vandamálum.
Gagnrýnin hugsun
Í heimi ofgnóttar upplýsinga er mikilvægt að læra að meta uppruna og gildi upplýsinga. Skátarnir fá þjálfun í að skoða og rýna í upplýsingar og mynda sér sjálfstæða skoðun á viðfangsefninu.
Ímyndunarafl og listræn tjáning
Skátarnir fá rými til að þess að gleyma sér í töfrandi heimi ævintýranna og fá tækifæri til að láta ímyndunaraflið flæða. Hvort sem það er myndræn útfærsla, söngur, leikur, sögur, dans eða búa til skemmtilegt þema fyrir útilegu.
Skapandi hugur

Heimurinn
Skátahreyfingin er friðarhreyfing. Skátarnir öðlast skilning á heiminum, bæði nærumhverfi og fjarlægari stöðum, hvernig hægt sé að stuðla að jafnrétti í heiminum og öðlast skilning á að framlag allra skipti máli.
Náttúran
Í skátastarfi er útivist mikilvægur hluti af þroskaferli skátans. Samband skátans við náttúruna dýpkar tilfinningu fyrir margbreytileika hennar og krafti. Þyki okkur vænt um náttúruna göngum við betur um hana.
Samfélagið
Virk þátttaka í samfélaginu eykur lýðræðisvitund og gefur okkur tækifæri til að hafa áhrif á eigið líf, umhverfið og heiminn allan. Skátarnir brenna fyrir málefnum sem gera heiminn betri. Markmið skátanna er öflugt ungmennalýðræði þar sem ungmenni hafa áhrif á samfélag sitt og eru leiðtogar í umbótum í nærsamfélaginu.
Heimurinn og umhverfið

Tilveran
Með því að velta fyrir sér hvað skiptir okkur máli eða hverng lífi við viljum lifa, kynnumst við sjálfum okkur betur og það hjálpar okkur til að taka afstöðu til grundvallarspurninga, hvort sem er innan eða utan skátahreyfingarinnar. Engar spurningar eru of stórar til að velta fyrir sér.
Eigin gildi
Okkar persónulegu gildi tengjast því hver við erum og fyrir hvað við stöndum. Hvað er mikilvægt fyrir mig og hvernig tengjast mín gildi, þeim gildum sem skátahreyfingin stendur fyrir.
Sjálfstraust, sjálfsábyrgð og sjálfsþekking
Skátarnir vita hvað þeir vilja, hvað þeir geta og hvað er þeim mikilvægt. Skátinn veit að hann er góður eins og hann er. Sjálfstraust og sjálfsþekking er forsenda þess að skátanum líði vel í starfi.
Áskoranir
Þau sem þora að ögra sjálfum sér, hafa alla möguleika til þess að standast áskoranirnar, læra meira um sig sjálf og þroskast á allan hátt. Áskoranirnar geta verið fjölbreyttar og reyna á skátana á marga vegu.
Líkaminn
Skátarnir læra um líkamann sinn, hvað hefur áhrif á hann að utan sem innan og hvernig viðeigandi áskoranir reyna á líkamann.
Tilveran mín



