Hrefnuskátar

Forvitni - uppgötvun - gaman

Aldursbil:  5-6 ára


Starf:  Skátasveit eða hópur í fjölskylduskátasveit


Lýsing á starfi: amk 1x í mánuði


Viðfangsefni: Leysa verkefni og njóta útivistar með foreldrum á hliðarlínunni. Upplifa náttúruna á eigin skinni. Læra að hjálpa öðrum


Vöxtur: Stýra ferðinni þó foreldrar séu með. Geta haft frumkvæði í leikjum. Tilbúin að sleppa tökunum og standa á eigin fótum. 

Ferðir og viðburðir:

  • Hátíð fjölskylduskáta
  • Hrefnuskátahelgi á ÚSÚ
  • Fjölskyldubúðir á Landsmóti

Hrefnuskátar
  • Verða örugg í að leiða verkefni. Stíga upp til að leiðbeina öðrum í flokknum.
  • Þekkja styrkleika og veikleika flokksins og geta nýtt sér það í flokkavinnu.
  • Axla ábyrgð á sjálfum sér. Skilja og virða mörk annarra.


Leiðtogafærni

  • Æfa sig í að finna lausn á einföldum vandamálum undir leiðsögn fullorðinna
  • Æfa sig í að hlusta
  • Kynnast hreyfisöngvum


Skapandi hugur

  • Kynnast skátaheimilinu
  • Örugg umgengni í kringum eld
  • Dýralíf og plöntur eru í forgrunni verkefna
  • Fyrstu skrefin í að umgangast náttúruna


Heimurinn og umhverfið

  • Gera sér grein fyrir margbreytileikanum
  • Segja sína skoðun á einhverju sem þau geta haft skoðun á
  • Fara í dagsferð
  • Læra að reima skóna

Tilveran mín

Hvatakerfi

Færnimerki

Könnuðamerki

Hæða- og stikumerki

Þátttökumerki