Fálkaskátar
kjarkur - hugmyndaflug - samvinna
Aldursbil: 10-12 ára
Starf: Flokkur – sveit – sveitarráð
Lýsing á starfi: Vikulegt starf í flokki, sveitarfundir reglulega
Viðfangsefni: Standa á eigin fótum og hafa mikil áhrif á verkefnaval flokks og sveitar. Læra að vinna í hóp og bera ábyrgð. Aukin vitund um eigin líkama og getu og að taka tillit til jafningja sinna. Læra að búa sig fyrir útivist, skyndihjáp og skapa ævintýri úti í náttúrunni.
Vöxtur: Hafa tekið ábyrgð á eigin verkefnum og eigin búnað. Fengið tækifæri til að leiða flokkinn. Hafa fundið sjálfstraust í útivist. Geta sagt frá uppplifun sinni og tjáð skoðanir sínar. Hafa rödd í dagskrárvali flokksins.
Ferðir og viðburðir:
- Fálkaskátadagurinn
- Flokkamót
- Aldursbilamót
- Landsmót
- Skátasumarið
- FálkaKraftur

- Verða örugg í að leiða verkefni. Stíga upp til að leiðbeina öðrum í flokknum.
- Þekkja styrkleika og veikleika flokksins og geta nýtt sér það í flokkavinnu.
- Axla ábyrgð á sjálfum sér. Skilja og virða mörk annarra.
Leiðtogafærni
- Geta skipulagt sig og brugðist við, eftir aðstæðum.
- Velta fyrir sér spurningum um hvað er satt og ósatt og æfa sig í að draga eigin ályktanir.
- Þora að tjá sig og sýna svipbrigði sín fyrir öðrum.
Skapandi hugur
- Kynnast mismunandi menningarheimum. Setja sig í spor þeirra sem lifa við aðrar aðstæður.
- Læra að bera virðingu fyrir náttúrunni. Skilja að það geta leynst hættur í umhverfinu.
- Taka þátt í undirbúningi og framkvæmd samfélagsverkefnis í nærumhverfi.
Heimurinn og umhverfið
- Velta fyrir sér sínum eigin skoðunum og gildum og geta sagt frá þeim. Hvað er mikilvægt fyrir mig?
- Læra að setja sig í spor annara.
- Geta deilt þekkingu/sögu/færni með flokksfélögum.
Tilveran mín
Hvatakerfi

Færnimerki

Könnuðamerki

Hæða- og stikumerki




